Þjóðhátíðardagur Svía er á morgun, 6. júní, og af því tilefni verður hátíðardagskrá streymt á facebooksíðu sænska sendiráðsins á Ísland og hefst hún á hádegi. Af viðburðum á dagskrá má nefna tónleika Léons og Josés Gonzáles. Gonzáles er ein stærsta stjarna Svíþjóðar í tónlistargeiranum og mun hann koma fram í sumarbústað sínum í Bohuslän á vesturströnd Svíþjóðar. Tónlistarkonan Léon kemur fram í hljóðveri í Stokkhólmi sem tengist ABBA sterkum böndum og er hún sögð alþjóðleg tónlistarstjarna með ótvíræða rödd.
Dagskrána má finna á facebooksíðu sendiráðsins.