Newsted mun ekki bjarga málum.
Newsted mun ekki bjarga málum. — AFP
Nei Þrassgoðin í Megadeth gera nú dauðaleit að nýjum bassaleikara eftir að David Ellefson var vikið úr bandinu á dögunum.
Nei Þrassgoðin í Megadeth gera nú dauðaleit að nýjum bassaleikara eftir að David Ellefson var vikið úr bandinu á dögunum. Jason Newsted, sem í eina tíð var í Metallica, mun þó ekki leysa hann af hólmi, að því er eiginkona hans, Nicole, staðfesti á samfélagsmiðlum í vikunni. „Jason mun ekki ganga til liðs við Megadeth. Friður sé með þeim. Hlustið á málm.“ Svo mörg voru þau orð. Í fyrra var upplýst að Newsted glímdi við axlarmein og gæti ekki spilað af fullum krafti.