„Við höfum lent í alls konar brasi og erfiðum aðstæðum en það hræðir mig ekki.“
„Við höfum lent í alls konar brasi og erfiðum aðstæðum en það hræðir mig ekki.“ — Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Við hittumst á veitingastaðnum Tanganum, útsýnið frábært yfir Heimaklett og höfnina og skipin sem koma og fara; í nokkurra skrefa fjarlægð frá þar sem Herjólfur liggur við Básaskersbryggju.

Við hittumst á veitingastaðnum Tanganum, útsýnið frábært yfir Heimaklett og höfnina og skipin sem koma og fara; í nokkurra skrefa fjarlægð frá þar sem Herjólfur liggur við Básaskersbryggju. Á móti mér situr stýrimaðurinn á Herjólfi, Ingibjörg Bryngeirsdóttir. Hún er Eyjakona í húð og hár sem eftir nokkrar dýfur er á góðum stað í lífinu. Er ánægð í vinnunni, á dásamlegan mann og sátt við tekjur sínar. Er með próf upp á vasann sem einkaþjálfari og stefnir hærra á því sviði. Var þerna á Herjólfi þegar hún fyrir misskilning var skráð í skipstjórnarnám í Vestmannaeyjum. Ákvað að slá til og sér ekki eftir því.

Ómar Garðarsson

fréttaritari í Vestmannaeyjum

Uppvöxturinn í Eyjum var hefðbundinn, ein þriggja systra og ólst upp í barnmörgu umhverfi í Dverghamrinum, hverfi vestast á Heimaey sem reis eftir gosið á Heimaey 1973. Bannað að fara yfir götuna út á Hamarinn en bönn halda ekki alltaf og það átti við Ingibjörgu og vinkonur í æsku og þegar kom fram á unglingsárin. Þá var tekið hressilega á því og af það miklum krafti að okkar kona sagði stopp 23 ára og hefur verið óvirkur alkóhólisti í 21 ár.

„Já, ég sá að ég varð að gera eitthvað ef ég ætlaði ekki að klúðra lífinu og fór í meðferð. Var komin á það stig að ég varð að gera eitthvað í því,“ segir Ingibjörg á eins eðlilegan hátt og við værum að spjalla um ölduhæð í Landeyjahöfn. „Þetta var árið 2000 en ég var 13 ára þegar ég byrjaði að drekka.“

Óvenjulegt að taka þetta stóra ákvörðun aðeins 23 ára. „Það kviknaði eitthvert ljós og ég fann að þetta átti ekki við mig. Var orðin virkilega ljót persóna, búin að missa fjölskylduna frá mér, marga vini af því að ég var ekki orðin ég sjálf. Var ekki undir áhrifum alla daga en það var engin framtíð í því sem ég var að gera.“

Týndi sjö klukkutímum

Var það eitthvað sérstakt sem gaf þér spark?

„Þetta var farið að bitna illilega á mér sjálfri. Ég hafði reynt þrisvar sjálf að hætta en það gekk ekki. Svo hrundu prinsippin eitt af öðru, að gera ekki þetta og gera ekki hitt. Var bara orðið hræðilegt ástand. Alltaf ljúgandi, fannst allir á móti mér og leið bara illa. Stóra höggið var svo þegar ég týndist í Keflavík í sjö klukkutíma. Veit ekkert hvað gerðist,“ segir Ingibjörg sem var að halda upp á afmæli með vinkonu sinni, en báðar eiga afmæli í mars.

„Það var djammað en ég átti það til þegar mér fannst vinafólkið orðið leiðinlegt að draga mig út úr hópnum og fara eitthvað. Á leið niður í bæ fer ég inn í húsasund og veit ekki meir. Vinir mínir vita ekki hvar ég var. Þetta var um tólfleytið og svo rankaði ég við mér klukkan sjö um morguninn.“

En hvar var Ingibjörg þegar hún rankaði við sér? „Á þessum tíma voru strippstaðir vinsælir og voru opnir lengi. Allt í einu klukkan að verða hálfátta sit ég á einum þeirra og er að drekka bjór með vini mínum og spjalla. Þarna gerðist eitthvað. Ég veit ekkert hvað ég gerði, hvert ég fór og það vissi enginn.“

Þrjár vikur sem standa enn þá

Meðferðin skilaði árangri og Ingibjörg vann víða, bæði í Vestmannaeyjum, á fastalandinu og í Noregi. „Það var svo árið 2005 að Sigga í Kjarna bað mig um að koma á Herjólf og hjálpa þeim í teríunni í þrjár vikur og þær standa enn þá,“ segir Ingibjörg um það þegar hún byrjaði á Herjólfi. Vann sem þerna, kokkur, háseti á dekki og loks í brúnni. „Ég held að ég sé búin að vinna öll störf um borð nema sem vélstjóri og skipstjóri.“

Hún fann sig strax á Herjólfi, aldrei sjóveik, finnst starfið skemmtilegt og henta sér vel. „Það er gaman og alltaf einhver ævintýri, ekki bara að sigla. Þú ert alltaf að hitta nýtt fólk og ýmislegt sem gerist. Hef m.a. lent í tveimur sprengjuhótunum þannig að það er alltaf eitthvað að gerast.“

Aðspurð segir Ingibjörg dekkið á Herjólfi og brúna mikið karlasamfélag en hún kvartar ekki. „Að vera kölluð strákur er eitthvað sem ég er hætt að kippa mér upp við. Ég er eina konan í brúnni og þegar við erum send á námskeið er ég yfirleitt eini kvenmaðurinn nema einhverjar af stelpunum séu með mér. Það vita flestir í sjóbransanum hver ég er en ég finn engan mótbyr.“

Ekki gefa strákunum neitt eftir

Þernan sem verður stýrimaður. Hvernig kom það til?

„Veturinn 2006 til 2007 átti að endurvekja skipstjórnarnám í Vestmannaeyjum og við vorum að ræða það um borð. Þegar ég var beðin um að skrá mig hélt ég að ég væri að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu sem mér fannst sjálfsagt. Stuttu seinna var hringt í mig og tilkynnt að ég væri komin inn í skólann, sem kom mér á óvart en eftir hvatningu ákvað ég að slá til. Ekki af einhverjum krafti til að byrja með en svo fannst mér þetta svo skemmtilegt. Var í mótvindi þegar ég byrjaði sem espaði upp í mér þrjóskuna. Ætlaði ekki að gefa strákunum neitt eftir,“ segir Ingibjörg sem lauk fyrri hluta námsins í Eyjum og tók farmanninn í Reykjavík. Alls tók námið fjögur ár og í leiðinni tók hún stúdentspróf.

Útskrifast 2011, steig fyrstu skrefin í starfi hjá Ribsafari í Vestmannaeyjum. Sumarið 2012 var hún skipstjóri á hvalaskoðunarbát á Húsvík og líkaði vel. Um haustið bauðst henni starf á Herjólfi sem hún tók. „Þeir hringdu og buðu mér starf sem stýrimaður. Ákvað að prufa og er enn þá. Allt strákar í brúnni en mér líður vel, ánægð með vinnuna og nýt virðingar.“

Bíladekkið algjör snilld

Sjómennskan á vel við Ingibjörgu sem hefur lent í ýmsu. Var um borð í afleysingaskipinu St. Ola þegar skipið fékk á sig brot og þrír gluggar fóru inn og allt á flot. „Við höfum lent í alls konar brasi og erfiðum aðstæðum en það hræðir mig ekki.“

Ingibjörg er ánægð með nýjan Herjólf og ánægjan hefur vaxið. „Það voru allir stressaðir þegar við fórum fyrst í Þorlákshöfn en hann er alltaf að koma okkur meira og meira á óvart. Veltur öðruvísi, fer betur með mann, lætur betur að stjórn og er fljótari að bregðast við. Bíladekkið algjör snilld og fljótlegt að lesta og losa.“

Ingibjörg er ekki kona einhöm og hefur lokið námi sem einkaþjálfari og nú er það andlega hliðin. „Ég er á fyrstu önn og við erum að fara inn á andlegu hliðina hjá okkur sjálfum. Kafa í gegnum æskuna, hvernig líður okkur í dag og fleiri þætti. Pínu krefjandi en ég hef í gegnum edrúmennskuna unnið mikið með sjálfa mig.“

Ertu sátt við Ingibjörgu í dag?

„Já. Mjög sátt. Hún er alltaf að þroskast. Á yndislegt hús, yndislegt líf og er vel stæð. Á yndislegan mann í dag. Er alveg frábær og heitir Hreiðar Örn,“ segir Ingibjörg sem segist ekki hafa áhuga á að verða skipstjóri á Herjólfi.