Holland Björn Bogi Guðnason er kominn til Heerenveen.
Holland Björn Bogi Guðnason er kominn til Heerenveen. — Ljósmynd/Knattspyrnudeild Kefl.
Björn Bogi Guðnason, 17 ára gamall knattspyrnumaður úr Garði, hefur samið við hollenska félagið Heerenveen til þriggja ára. Björn fór tólf ára gamall frá Víði til Keflavíkur og spilaði fjóra leiki með meistaraflokki Keflavíkur í 1. deildinni í fyrra.
Björn Bogi Guðnason, 17 ára gamall knattspyrnumaður úr Garði, hefur samið við hollenska félagið Heerenveen til þriggja ára. Björn fór tólf ára gamall frá Víði til Keflavíkur og spilaði fjóra leiki með meistaraflokki Keflavíkur í 1. deildinni í fyrra. Hann var síðan lánaður til Víðismanna í 2. deildinni seinni hluta tímabilsins og skoraði þar þrjú mörk í sjö leikjum. Björn Bogi mun leika með unglingaliði Heerenveen en margir íslenskir knattspyrnumenn hafa farið ungir til félagsins.