Nýr Börkur kom til Neskaupstaðar á fimmtudag og er hið myndarlegasta. Fjöldi fólk fylgdist með komu skipsins.
Nýr Börkur kom til Neskaupstaðar á fimmtudag og er hið myndarlegasta. Fjöldi fólk fylgdist með komu skipsins. — Ljósmynd/Kristín Hávarðsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það var bjart og stillt í Norðfirði er nýsmíði Síldarvinnslunnar sigldi til heimahafnar í fyrsta sinn í fylgd Beitis NK á fimmtudag. Heimamenn voru mættir til að fagna komu skipsins, sem er nýjasta skip í flota landsins.

Það var bjart og stillt í Norðfirði er nýsmíði Síldarvinnslunnar sigldi til heimahafnar í fyrsta sinn í fylgd Beitis NK á fimmtudag. Heimamenn voru mættir til að fagna komu skipsins, sem er nýjasta skip í flota landsins. Skipið mun formlega fá nafnið Börkur við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn, en það leysir eldri Börk af hólmi.

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Það eru auðvitað kaflaskil að fá nýtt skip inn í fyrirtæki og byggðarlag eins og okkar. Þetta er gleðidagur og áskorun líka að taka nýtt skip í notkun,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, við komu skipsins. „Svo er maður bara þakklátur fyrir að fá að taka þátt í svona samstarfi við skipasmíðastöðina, áhöfnina, starfsmenn okkar og starfsmenn Samherja. Þetta er voðalega ánægjulegt og gefandi samstarf og er að skila af sér mjög góðri afurð,“ bætir hann við.

Gunnþór segir faraldurinn ekki hafa komið niður á umfangsmiklu samstarfi margra aðila sem þurfti til að sinni nýsmíðunum. Hins vegar hafi það vissulega verið þannig að starfsmenn Síldarvinnslunnar þurftu að dvelja erlendis í lengri tíma í senn vegna ferðatakmarkana. Auk þess seinkaði afhendingu skipsins. Skipasmíðastöðin hafi hins vegar staðið sig vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður, að sögn hans. „Þetta er hugsanlega ein fremsta skipasmíðastöð í heimi, sérstaklega í smíði uppsjávarskipa. Þeir afhenda fimm til sex uppsjávarskip á ári og kunna sitt fag. Þetta gekk allt mjög vel.“

Hinn nýi Börkur var smíðaður hjá dönsku skipasmíðastöðinni Karstensens á Skagen og kostaði Síldarvinnsluna 5,7 milljarða króna. Skipið, sem búið er til flotvörpu- og hringnótaveiða, er systurskip Vilhelms Þorsteinssonar EA sem Samherji gerir út og kom til Akureyrar í byrjun apríl.

Eldri Börkur í sölu

Spurður hvort gera megi ráð fyrir að nýr Börkur verði afkastameiri en skipið sem hann leysir af hólmi svarar hann: „Við höfum skip sem við erum að fara með í sölu sem er smíðað 2012, það er ekki eins og það sé mjög gamalt skip, en þetta er burðarmeira. Það er allur nýjasti búnaður, hvort sem það er fiskileitartæki eða búnaður í kringum veiðarnar, vinnuaðstaða, aðbúnaður eða búnaður á dekki.

Við ætlum okkur að spara töluverða olíu, þetta er mun hagkvæmara skip. Við erum með tvær aðalvélar, sem er ekki algengt. Við teljum okkur geta náð töluverðum árangri þar í að gera skipið mjög hagkvæmt. Það er mjög góð nýting á allri afgangsorku í því. Við erum með vatnslagnir í gólfum til að nýta vatnshita og afgangshita frá vélum. Það er nokkuð sem ég held að ekki mörg önnur skip séu með.“

Hann segir hönnunina á skrokki og stefni skipsins alla hafa tekið mið af því að hámarka árangur og skila hagkvæmni. „Það er mjög spennandi verkefni að taka þetta í notkun. Við bíðum bara spenntir eftir því að byrja að nota skipið og sjá hvernig þetta virkar. [...] Það hefur ekki reynt mikið á þetta skip, en það er búið að reyna eitthvað á systurskipið Vilhelm Þorsteinsson og þeir eru bara í skýjunum með það. Stefnislagið skilar mjög góðum sjóskipum.“

Hægt er að sjá á myndum að Börkur fer vel í sjó, að sögn Gunnþórs sem bendir á að töluverður munur sést á hegðun skipsins og Beitis sem fylgdi nýsmíðunum í Norðfirði á fimmtudag. Upptöku af komu skipsins má finna á youtube-rás Síldarvinnslunnar.

Töluvert hefur verið fjárfest í nýjum uppsjávarskipum hér á landi á undanförnum á árum. Spurður hvernig staða íslenska uppsjávarflotans sé í samanburði við samkeppnisþjóðir Íslendinga, Færeyinga og Norðmenn, svarar Gunnþór: „Við höfum, Íslendingar, verið að fjárfesta í uppsjávarskipum undanfarin ár og erum komnir mjög framarlega með okkar flota. Ég tel að við stöndumst alveg þann samanburð í dag; þó að við höfum kannski ekki gert það fyrir fimmtán eða tuttugu árum þá gerum við það í dag.“

Til sýnis um helgina

Börkur verður í dag milli klukkan þrjú og fimm síðdegis til sýnis fyrir starfsmenn Síldarvinnslunnar og fjölskyldur þeirra. Á sjómannadaginn verður svo opnað fyrir almenning eftir að skipið hefur formlega fengið nafnið við hátíðlega athöfn klukkan ellefu. Munu sjómenn úr áhöfninni fara um skipið með gestum.

Skipstjórinn kveðst stoltur

„Þetta gekk bara óskaplega vel,“ segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á nýja Berki, um siglinguna heim sem tók fimm daga. Siglt var vestur í gegnum Skagerrak frá Skagen í Danmörku og vestur með Noregi áður en stefnan var tekin til vesturs í átt að Færeyjum og þaðan til Íslands. „Við vorum bara í skoðunarferð. Skoðuðum Færeyjar vel og vinkuðum vinum okkar þar. Mjög þægilegt ferðalag á mjög góðu og glæsilegu skipi.“

Hjörvar er hæstánægður með hvernig sé að sigla skipinu. „Það er mjög ljúft. Það er hljóðlátt og sparneytið greinilega, það fer ekki mikið af olíu miðað við fyrri skip. Þetta lítur allt mjög vel út og næsta mál á dagskrá er að prófa hann á veiðum núna eftir helgi.“

Vandað skip í alla staði

Spurður hvernig sé að setjast í skipstjórnarstólinn á glænýju skipi svarar skipstjórinn: „Það er bara góð tilfinning að vera treyst fyrir því að taka við nýju skipi og maður er stoltur af því að fá svona tækifæri, það er ekki sjálfgefið á ferlinum að komast á nýsmíði. Þær hafa nú ekki verið allt of margar hér á Íslandi en fer fjölgandi sem betur fer.“

Þá segir Hjörvar margt við nýja Börk minna á geimskip. „Það er allt hlaðið af búnaði og svolítið nýr heimur. Þótt það sé ekki nema níu ára, skipið sem við vorum á, þá er þetta gríðarleg breyting í tækni frá því að hann var kláraður. Þetta er allt eins tæknilegt og hægt er og mjög flott skipasmíðastöð sem þetta er smíðað hjá, það er alveg ótrúlega vandað skipið að sjá í alla staði.“ Bætir hann við að áhöfnin sé ánægð með aðbúnað og vinnuaðstöðu um borð. „Þeir eru bara í sjöunda himni með þetta. Allt eins glæsilegt og hægt er.“

Er maður stoltur af því að vera á svona skipi?

„Já, það er nú eiginlega ekki hægt annað. Komum hérna í hádeginu [á fimmtudag] í fylgd með Beiti í stórglæsilegu veðri, bæjarbúar á bryggjunni að mynda og við tókum nokkra hringi fyrir framan þá. Þetta var mjög flott stund.“

Nýr Börkur NK
*Mesta lengd skipsins er 89,07 metrar.
*Skráð lengd þess er 83,40 metrar.
*Breidd skipsins er 16,6 metrar.
*Þrettán RSW-tankar eru um borð í skipinu og er samanlagt rúmmál þeirra 3.440 rúmmetrar.
*Skipið er því alls 4.140 brúttótonn.
*Skipið er byggt af Karstensen-skipasmíðastöðinni í Danmörku en skrokkurinn var smíðaður í Gdyniu í Póllandi af sama fyrirtæki.
*Auk hefðbundinnar 250 ampera landtengingar er skipið útbúið 1.100 ampera landtengingu.
*Tvær aðalvélar eru í skipinu, af gerðinni Rolls Royce Bergen.
*Vélarnar keyra út á eina skrúfu í gegnum einn sameiginlegan niðurfærslugír (Flender GVL-1400).
*Vélarnar hafa hvor sinn ásrafalinn (Cummins AvK) upp á 2.300 kW. Aukalega er ein ljósavél frá Mitsubishi upp á 820 kW og ein hafnarvél frá John Deere (6068) upp á 166 kW.
*Aðalvélin knýr glussakerfið og drifbúnað.
*Á siglingu nægir að keyra aðra aðalvél skipsins.
*Á togi verða báðar aðalvélarnar í gangi og knýja drifbúnað og sjá fyrir raforkuþörf skips og búnaðar.
*Aflstjórnunakerfi er fyrir rafmagnið.
*Fljótandi tíðni er á rafkerfinu sem veitir aðalvélum svigrúm til snúningshraðabreytinga upp á 17%.