Elsku Fiskurinn minn, þér dettur oft í hug að þú hafir ekki afkastað nóg. Þar sem plánetan Mars er svo sterk yfir stöðunni þinni, þá áttu eftir að finna athafnamanninn í þér.

Elsku Fiskurinn minn, þér dettur oft í hug að þú hafir ekki afkastað nóg. Þar sem plánetan Mars er svo sterk yfir stöðunni þinni, þá áttu eftir að finna athafnamanninn í þér. Og mundu að þú verður fyrst og fremst að tengja huga þinn við að vera ekki of alvörugefinn í metnaði þínum og finnast að einhverjir séu á móti þér. Það er nefnilega ranghugsun, ekki láta alla vita hvað þú ætlar að gera eða hvert þú ætlar að fara, haltu því bara, elskan mín, hjá sjálfum þér. Þetta er merkilegt sumar og þú munt færa sólskin inn í líf annarra. Og þegar þú gerir það mun sólskinið tvöfaldast inn í þína tilveru. Þú skalt stefna hátt og búast við miklu, því þótt þú ætlaðir þér að fanga sjálfa sólina og gætir það ekki, þá muntu alla vega krækja þér í stjörnu.

Það fer svolítið í pirrurnar á þér í sambandi við menntun, hvað þú eigir að læra og hvers vegna. En það er alveg sama hvaða menntun þú hefur og þótt hún gæti tryggt þér starfið, þá er það samskiptahæfni þín sem tryggir þér stöðuhækkunina, ekki menntunin.

Hjarta manns er svo fljótt að gleyma góðum árangri og áföngum sem hafa skautað inn í lífið síðustu árin. Og þegar sú hugsun sígur inn í heilabúið, þá getur hún mallað þar í mörg, mörg ár og hindrað það sem þú hefur fullkominn rétt á. Skrifaðu nú niður allt sem hefur fært þér velgengni, segjum bara síðustu þrjú ár. Og það væri ekki verra þú skrifaðir það niður á appelsínugult blað, því heilinn og frumurnar muna betur það sem er lesið upp af slíkum lit.

Þú þarft að vinna að því að öðlast velgengni, svo farðu og náðu í hana, því það eru að birtast þér svo mörg tækifæri sem innihalda góða áfangasigra og hamingju. En þú þarft að hafa hugrekki til að grípa slík tækifæri þegar þau gefast þér. Þú átt eftir að finna fyrir fiðrildum í maganum, tíðni og víbringur ástarinnar hækkar, því þú ert eins og segull á ástina.