Meistarar Hluti af kvenna- og karlaliðið Stjörnunnar sem vann tvöfalt.
Meistarar Hluti af kvenna- og karlaliðið Stjörnunnar sem vann tvöfalt. — Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands
Bæði kvenna- og karlalið Stjörnunnar urðu Íslandsmeistarar í hópfimleikum á Akranesi í gær. Kvennalið Stjörnunnar vann á mótinu með 59.150 stig en lið Gerplu hafnaði í öðru sæti með 56.800 stig.
Bæði kvenna- og karlalið Stjörnunnar urðu Íslandsmeistarar í hópfimleikum á Akranesi í gær. Kvennalið Stjörnunnar vann á mótinu með 59.150 stig en lið Gerplu hafnaði í öðru sæti með 56.800 stig. Þá fögnuðu Garðbæingar sigri á öllum áhöldum í kvennaflokki. Karlalið Stjörnunnar 1 hlaut 54.700 stig en lið Stjörnunnar 2 varð í öðru sæti með 44.300 stig. Líkt og í kvennaflokki fagnaði karlalið Stjörnunnar sigri á öllum áhöldum. Í 1. flokki kvenna varð lið Gerplu hlutskarpast.