Fulltrúar Austurbrúar, Alcoa-Fjarðaáls, Síldarvinnslunnar, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri við undirritun samkomulagsins um Gletting.
Fulltrúar Austurbrúar, Alcoa-Fjarðaáls, Síldarvinnslunnar, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri við undirritun samkomulagsins um Gletting.
Austfirsk fyrirtæki hafa sett á fót hvatningarstyrk fyrir nemendur háskólagrunns Háskólans í Reykjavík. Fimm fyrirtæki fjármagna styrkinn, þar af fjögur í haftengdri starfsemi.

Karítas Ríkharðsdóttir

karitas@mbl.is

Austurland að Glettingi“ höfum við öll heyrt, alla vega þau sem hlusta enn á veðurfregnir í útvarpi, og má segja að orðin séu samhangandi greypt í minni fólks.

Það er viðeigandi að nýr hvatningarstyrkur fyrir nemendur í háskólagrunni Háskólans í Reykjavík á Austurlandi skuli hafa hlotið nafnið Glettingur. Sjávarútvegsfyrirtæki á Austurlandi eru áberandi stuðningsaðilar framtaksins.

Samkomulag um Gletting, nýjan hvatningarstyrk atvinnulífsins fyrir nemendur í háskólagrunni HR á Austurlandi, var undirritað á fimmtudaginn af rektorum Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri, ásamt framkvæmdastjóra Austurbrúar og fulltrúum atvinnulífs á Austurlandi. Greint hefur verið frá því að að HR muni í samstarfi við HA bjóða upp á aðfaranám fyrir háskólanám á svæðinu með sérstakri áherslu á tæknigreinar.

Segja má að framtakið sé fyrsta skrefið að langþráðri virkni háskólastarfsemi á Austurlandi.

Hingað til hefur tíðkast að halda svokallaðan forsetalista í HR þar sem námsárangur nemenda er verðlaunaður með styrkjum. Glettingur kemur til viðbótar hefðbundnum forsetalista og er einungis ætlaður nemendum í háskólagrunni á Austurlandi.

Markmið með nýjum hvatningarstyrk er að hvetja nemendur til góðrar ástundunar og auka vitund og umræðu um mikilvægi þekkingarstarfsemi á Austurlandi.

Hálf milljón fyrir hæstu einkunnir

Þeir nemendur sem ljúka fullu námi á einu ári með hæstu einkunn hljóta styrkinn. Hver styrkur mun nema 500.000 krónum og er ráðgert að einn til tveir nemendur geti hlotið styrkinn í lok námsárs. Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja og Laxar fjármagna styrkinn sameiginlega til tveggja ára en fulltrúar þeirra hafa tekið virkan þátt í fjármögnun og stefnumótun háskólaverkefnisins á Austurlandi.

Rektorar beggja skóla lýstu við undirskriftina yfir ánægju með víðtæka aðkomu atvinnulífsins að verkefninu og sögðu hana til marks um víðtækan og mikilvægan samfélagslegan stuðning við uppbyggingu háskólanáms á svæðinu.

Háskólagrunnur HR á Austurlandi er fyrir þá sem vilja hefja háskólanám en vantar tilskilinn undirbúning. Hægt er að ljúka lokaprófi úr háskólagrunni eða viðbótarnámi við stúdentspróf og nýta sem leið inn í nám á háskólastigi.