Elsku Nautið mitt, það er svo dásamleg orka allt í kringum þig, svo mundu að hugsa að anda hamingjunni inn eins djúpt og þú getur og eins þegar þú andar henni út. Gerðu þetta eins oft og þú getur og andaðu henni að þér alveg niður í magastöð.

Elsku Nautið mitt, það er svo dásamleg orka allt í kringum þig, svo mundu að hugsa að anda hamingjunni inn eins djúpt og þú getur og eins þegar þú andar henni út. Gerðu þetta eins oft og þú getur og andaðu henni að þér alveg niður í magastöð. Þín sterkustu einkenni eru iðni, þor og greind og ef þér finnst að þig vanti eitthvað af þeim einkennum, þá er það blekking. Þú færð bestu tækifærin þegar þú hlýðir eðlisávísun þinni og hvikar alls ekki frá settu marki, þrjóski vinur minn, og viljastyrkurinn þinn mun koma þér á óvart. Þú ert svo trygglyndur og fagur í ástinni, en láttu ekki afbrýðisemi stjórna einu né neinu, því afbrýðisemi er frekja.

Ef þú ert fæddur í apríl, þá hefurðu töluna níu sem þýðir að þér verða boðaðar breytingar. Og þó þær verði kannski ekki snöggar, þá er þetta líkt því að þú skiptir um ham líkt og fiðrildið fallega sem losnar og flýgur úr púpunni. Ef þú ert fæddur í maí, þá hefurðu töluna fimm tvisvar sinnum inni í stöðunni þinni og útkoman þar er ás, eða talan einn. Þetta þýðir nýtt upphaf sem færir þig nær svo yndislegri líðan. Ef þú skoðar vel, þá vilja allir einfaldlega bara að sér líði vel, og þú ert á því ári þar sem þú finnur og vinnur að vellíðan.

Byrjaðu á því sem þig langar, þá muntu hressast og það sem þú gerir mun blessast. Þú átt eftir að draga að þér fólk með sömu eiginleika og þú og þá gerast ævintýrin. Þú munt njóta velgengni, en til þess að það sé sigur í henni, leyfðu þá öðrum að njóta með þér. Þrennt skaltu hafa í huga á þessum tíma sem er að mæta þér; að hafa eitthvað að starfa, eitthvað að elska og eitthvað til að hlakka til. Að sjálfsögðu er það bara eðli lífsins að ekki allir óska þér góðs gengis, því öfund er undirrót þeirra sem ekkert hafa komist áfram í lífinu. Sú mynd sem þú hefur í huganum mun skapa sterka þrá og það á það svo sterklega til að gerast sem þú sérð fyrir þér, bæði í ástinni og lífinu.