Þrautin þyngri. N-AV
Norður | |
♠1085 | |
♥G10 | |
♦Á72 | |
♣KDG92 |
Vestur | Austur |
♠6 | ♠Á432 |
♥843 | ♥Á9752 |
♦DG1053 | ♦86 |
♣Á1087 | ♣54 |
Suður | |
♠KDG97 | |
♥KD6 | |
♦K94 | |
♣63 |
Suður spilar 4♠.
„Þú ert varla í vandræðum með þetta,“ segir Kantar og skipar lesandanum til sætis í suður sem sagnhafa í 4♠. Útspilið er tíguldrottning.
„Auðvitað tekurðu fyrsta slaginn á tígulásinn í blindum og spilar hjarta. Það er forgangsverk að henda niður tígli í borði áður en vörnin fríar þar slag,“ útskýrir Kantar og biður lesandann hálfpartinn afsökunar á því að leggja fyrir hann svo létta þraut. En svo kemur í ljós að Kantar er bara að byggja upp sjálfstraust fyrir þrautina sem á eftir kemur. Það er nefnilega fiskur undir steini.
Eins og legan er má alls ekki trompa tígul strax. Austur mun þá henda laufi og fá stungu í litnum síðar meir. Kantar gefur lesandanum þrjú stig fyrir að taka útspilið á tígulás og spila hjarta, en fullt hús stiga (10 stig) fyrir að spila laufi áður en tígull er trompaður.
Melurinn.