Dervla Kirwan í nýju þáttunum, Smother.
Dervla Kirwan í nýju þáttunum, Smother. — BBC Studios/RTÉ Ireland
Sviptingar Írska skapgerðarleikkonan Dervla Kirwan er íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunn, meðal annars úr dramaþáttunum Blackout, þar sem hún lék á móti Christopher Eccleston.
Sviptingar Írska skapgerðarleikkonan Dervla Kirwan er íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunn, meðal annars úr dramaþáttunum Blackout, þar sem hún lék á móti Christopher Eccleston. Nú er hún mætt í nýjum írskum þáttum, Smother, sem sjónvarpsstöðin Alibi sýnir. Þar leikur Kirwan miðaldra konu sem tilkynnir óvænt í afmælisveislu sinni að hún sé að skilja og ætli að flytja inn til ungs elskhuga síns. Nokkrum klukkustundum síðar hverfur dóttir hennar sporlaust og eiginmaður hennar finnst látinn. Það verður til þess að okkar kona þarf heldur betur að skoða líf sitt ofan í kjölinn.