Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu vonum. Þær hafa verið yndislegar,“ segir Agla Egilsdóttir, rekstrarstjóri á Hressingarskálanum sem opnaður var í vikunni eftir langt hlé.
Þó nokkur tíðindi felast í því að Hressingarskálinn hafi verið endurvakinn í sinni gömlu mynd. Hann er elsta veitingahús borgarinnar og var um langt árabil vinsæll samkomustaður þekktra listamanna í bland við almenna borgara. Veitingarnar voru rómaðar og stemningin þótti einstök. Þegar leið á síðustu öld fóru vinsældirnar minnkandi, væntanlega vegna harðari samkeppni eftir að sífellt fleiri kaffihús skutu upp kollinum. Hressingarskálinn varð að skemmtistað og mátti muna fífil sinn fegri.
Gestirnir rifja upp ljúfar minningar
Nú hefur gamla, góða stemningin verið endurvakin og segir Agla að mikill áhugi virðist vera hjá fólki að upplifa hana. „Við ákváðum að endurvekja staðinn með gömlu gildunum. Hér er gamla, góða tónlistin og Hressó-kakan sem margir muna eftir. Nú er Hressó lítill og huggulegur staður þar sem seldur er heimilismatur fyrir alla, líka börnin því það er ekki sérstakur barnamatseðill, þau borða bara það sama og fullorðnir. Svo erum við líka með nýbakaðar kleinur og pönnukökur. Þú getur ekki labbað inn á hvaða stað sem er í Reykjavík og fengið þessar veitingar og þessa notalegu tilfinningu.“Agla segir að margir gestanna sem komið hafa í vikunni rifji upp sögur frá því þeir sóttu Hressingarskálann á árum áður. „Það eiga allir ljúfar minningar héðan. Núna sitja hjá mér gestir og einn þeirra var að segja mér frá því þegar amma hans fór með hann hingað þegar hann var barn. Þetta er ótrúlega gaman að heyra.“
Óhætt er að segja að vel hafi tekist til við að endurskapa gömlu stemninguna sem einkenndi Hressó. Agla tekur vel á móti gestum og þeir vita að hverju þeir ganga. Hér er ekkert kúskús eða kimchi; hér er gamla góða Reykjavík. „Það er góður andi í húsinu. Það koma allir brosandi hingað inn. Það er mikil hjartahlýja sem fylgir gestunum. Sagan er allt í kringum okkur og ekki bara gamla sagan. Líka sagan sem verið er að skrifa núna og sagan sem verður til á morgun,“ segir Agla sem er 32 ára gömul og hefur unnið í veitingabransanum frá því hún var 19 ára gömul. Hún kveðst hlakka til að sjá Hressó verða aftur að hornstein í menningu miðborgarinnar. „Ég hvet alla til að koma í kærleikann hér. Hér fær fólk dísætt kaffi og getur sagt mér sínar sögur af heimsóknum á Hressingarskálann. Fólk ætti líka að taka börnin sín og barnabörnin með og búa til nýjar sögur.“