Fjör Úr söngleiknum Djúpt inn í skóg.
Fjör Úr söngleiknum Djúpt inn í skóg. — Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýndi um síðustu helgi söngleikinn Djúpt inn í skóg og var uppselt á báðar sýningar. Vegna eftirspurnar hefur verið blásið til aukasýningar sem fram fer annað kvöld kl. 20 í Gaflaraleikhúsinu.

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýndi um síðustu helgi söngleikinn Djúpt inn í skóg og var uppselt á báðar sýningar. Vegna eftirspurnar hefur verið blásið til aukasýningar sem fram fer annað kvöld kl. 20 í Gaflaraleikhúsinu. Miðasala á sýninguna fer fram á vefnum tix.is.

Djúpt inn í skóg heitir á frummálinu Into the Woods og er eftir Stephen Sondheim og James Lapine en uppsetning söngskólans er í leikstjórn Orra Hugins Ágústssonar. Söngleikurinn hefur hlotið fjölda verðlauna.