Andríki sagði frá því á dögunum að það hefði fengið MMR til að kanna álit almennings á skrifum í athugasemdakerfi fjölmiðla. Aðeins 3% spurðra sögðust bera mjög eða frekar mikið traust til skrifa í athugasemdakerfi. Heil 85% bera mjög eða frekar lítið traust til slíkra skrifa. Um þetta segir Andríki: „Í athugasemdakerfum vefmiðla hímir hópur ritsóða. Sumir þeirra fela sig á bak við fölsk nöfn.

Engu að síður virðast sumir fjölmiðlar telja það sér til framdráttar að halda úti slíkum vettvangi. Þeim er það að sjálfsögðu frjálst. Þetta eru jafnvel fjölmiðlar sem skráðir eru á markað í virðulegum kauphöllum eða guma af samfélagslegri ábyrgð, rannsóknarblaðamennsku og siðareglum ritstjórnar.

Þess verður einnig vart að fjölmiðla- og stjórnmálamenn telji það einhver tíðindi sem fram fer í þessum sorglega afkima. „Netheimar loga“ skrifa sumir blaðamenn þegar virkir í athugasemdum láta gamminn geisa. „Mikil reiði er í samfélaginu“ segja sumir stjórnmálamenn eftir að hafa lesið hroðann.

Aðalsmerki virkra í athugasemdum er að efast um heilindi fólks sem er í fréttum. Fólk hafi ætíð óhreint mjöl í pokahorninu.“

Nú eru athugasemdakerfi ekki öll eins en þetta er engu að síður athyglisvert. Og það er umhugsunarefni hvort ýmsir afkimar samfélagsmiðla-umræðunnar njóti ekki ámóta vantrausts. Þar er umræðan iðulega litlu skárri.