„Bergmál er hljómsveit með okkur tveimur og við erum svona gleðikonur.
„Bergmál er hljómsveit með okkur tveimur og við erum svona gleðikonur. Af því að við viljum svona koma gleði í fólk með húmor og tónlist og eins og ég segi stundum að uppistandari og tónlist eignuðust barn og það erum við,“ segir Selma Hafsteinsdóttir, önnur söngkona hljómsveitarinnar Bergmáls, í viðtali við morgunþáttinn Ísland vaknar. Þær Selma og Elísa Hildur Þórðardóttir eru báðar söngkonur og lagahöfundar hljómsveitarinnar og segja þær mikinn húmor fylgja tónlist sinni. Á dögunum gáfu þær út sumarsmellinn Klofsöng sem er þegar kominn í spilun á YouTube og Spotify. Viðtalið við söngkonurnar má nálgast í heild sinni á K100.is.