Skimun Krabbameinsfélagið er ekki sátt við skýrsluna um skimunarstarfsemi félagsins.
Skimun Krabbameinsfélagið er ekki sátt við skýrsluna um skimunarstarfsemi félagsins.
Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Krabbameinsfélagið segir farið með rangt mál í skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd leghálskrabbameinsskimunar, sem Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, vann fyrir heilbrigðisráðherra.

Þóra Birna Ingvarsdóttir

thorab@mbl.is

Krabbameinsfélagið segir farið með rangt mál í skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd leghálskrabbameinsskimunar, sem Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, vann fyrir heilbrigðisráðherra. Félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu sem felur í sér athugasemdir og leiðréttingu við skýrsluna. KÍ bendir einnig á að skýrslan sýni glöggt hve ábótavant undirbúningi flutnings leghálsskimana frá Leitarstöð KÍ var.

Í skýrslunni var gefið í skyn að hlutaúttekt Embættis landlæknis á gæðamálum Leitarstöðvar hefði haft áhrif á samskipti Landspítala og LKÍ. KÍ fullyrðir hinsvegar að enginn skuggi hafi verið á samskiptum spítalans og félagsins vegna úttektarinnar.

Texti úr tölvupóstskeyti framkvæmdastjóra KÍ var birtur í skýrslunni þar sem hann bauð þjónustu félagsins til að halda skimunum áfram lengur en ráðuneytið hafði kveðið á um. KÍ bendir á að í þessum sama pósti hafi framkvæmdastjórinn óskað eftir frekari upplýsingum frá ráðuneytinu um hver myndi sinna rannsóknum og hvernig upplýsingagjöf til kvenna yrði háttað.

Ekki barst svar við póstinum og hélt LKÍ sig því við áður framkomna ákvörðun og sinnti skimun og tók á móti sýnum til 30. nóvember. Þar sem KÍ fékk ekki upplýsingar um hvar rannsóknir færu fram eftir áramót taldi það sig ekki hafa ástæðu til að ætla annað en að gengið hefði verið frá málum um rannsóknir leghálssýna til framtíðar.

Í skýrslunni kemur einnig fram að rannsóknarstofa LKÍ hafi hætt störfum í byrjun desember þótt starfssamningur hafi legið fyrir til ársloka 2020 og nefnt að það hafi leitt til þess að leghálssýni sem tekin voru undir lok ársins voru ekki rannsökuð heldur varðveitt til að unnt væri að rannsaka þau síðar. Krabbameinsfélagið segir það alrangt. Sýni hafi verið rannsökuð á rannsóknarstofu LKÍ til 22. desember og síðustu dagar mánaðarins hafi verið nýttir í frágang vegna lokunar LKÍ.

Varðandi sérhæfða þekkingu kemur fram í skýrslunni að Landspítali hafi talið sig þurfa að ráða starfsfólk sem áður starfaði hjá LKÍ til að geta sinnt frumurannsóknum. Krabbameinsfélagið bendir á að ástæða þess sé sérhæfing starfsfólksins. Fjöldi stöðugilda sé ekki afgerandi þáttur þegar rætt er um áhrif breytinga á sérhæfð störf heldur sú staðreynd að rannsóknirnar krefjist sérhæfðrar þekkingar sem hverfur úr landinu ef rannsóknirnar eru fluttar úr landi.