Landsréttur Maðurinn hlaut 14 ára dóm fyrir að bana konu sinni.
Landsréttur Maðurinn hlaut 14 ára dóm fyrir að bana konu sinni. — Morgunblaðið/Hanna
Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni á sextugsaldri fyrir manndráp. Héraðsdómur dæmdi manninn þann 13. janúar til 14 ára fangelsisvistar fyrir að verða eiginkonu sinni að bana á heimili þeirra í mars í fyrra.

Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni á sextugsaldri fyrir manndráp. Héraðsdómur dæmdi manninn þann 13. janúar til 14 ára fangelsisvistar fyrir að verða eiginkonu sinni að bana á heimili þeirra í mars í fyrra. Maðurinn neitaði sök bæði í héraði og fyrir Landsrétti og bar fyrir sig minnisleysi.

Konan lést á heimili þeirra hjóna í Sandgerði 28. mars og var eiginmaður hennar ákærður fyrir manndráp 24. júní árið 2020.

Fram kemur í dómi Landsréttar og hinum áfrýjaða dómi að maðurinn hringdi ekki á Neyðarlínuna daginn sem konan lést heldur gerði dóttir þeirra það. Í dómi Landsréttar var talið sannað að dánarorsök konunnar hefði verið köfnun vegna kyrkingartaks mannsins. Hefði hann mátt gera sér grein fyrir alvarleika árásarinnar og að líklegt væri að bani hlytist af henni. Ljóst þótti að um ásetning væri að ræða.

Manninum hafði hins vegar verið hleypt úr gæsluvarðhaldi í kjölfar úrskurðar Landsréttar um að skilyrði gæsluvarðhalds væru ekki uppfyllt. Þá sagði matsgerð dómkvaddra matsmanna frá 30. september mögulegt að konan „hafi látist af völdum blöndunareitrunar af klórdíasepoxíði, lífefna þess og áfengis“. Auk þess hefði kraftbeiting gegn hálsi konunnar sem hefði sést getað átt sér stað allt að þremur dögum fyrir andlát hennar.