Segir í tilkynningu að sýningin muni setja fram óvænta sýn á höfundarverk Steingríms sem hafi auðkennt ákveðna yfirflokka sem settir séu fram í því samhengi. Þessir flokkar eru Hið ósnertanlega, Arfurinn, Heimur kvenna, Gagnrýni, Guðs eigið land, Kellingin, Decode og Comix.
Í sýningarskrá skrifar Halldór Björn Runólfsson m.a. að í engu sé logið þegar fullyrt sé að Steingrímur Eyfjörð sé meðal okkar allra sérstæðustu listamanna. „Það helgast ekki síst af persónulegri nálægð hans við viðfangsefnið – það hversu langt hann leyfir list sinni að afhjúpa sinn innri mann án þess að blikna,“ skrifar Halldór og að Steingrímur sé margslunginn, víðlesinn og áhugasamur um alla skapaða hluti.
Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Nýlistasafnið lánuðu verk eftir Steingrím á sýninguna auk fjölmargra einkasafnara. Einnig aðstoðaði Hverfisgallerí safnið við gerð sýningarinnar sem stendur yfir til 22. ágústs. Listasafn Reykjanesbæjar er opið alla daga kl. 12-17.