Morð Lögreglumenn brutu sér leið inn til mannsins, sem var þá þegar látinn.
Morð Lögreglumenn brutu sér leið inn til mannsins, sem var þá þegar látinn. — AFP
Karlmaður skaut tvö börn og einn eldri borgara til bana í bænum Ardea, sem er skammt utan Rómar, í gær.

Karlmaður skaut tvö börn og einn eldri borgara til bana í bænum Ardea, sem er skammt utan Rómar, í gær. Læsti maðurinn sig svo af í íbúð í nokkrar klukkustundir, þar sem lögreglan reyndi að semja við hann um að gefa sig fram, áður en maðurinn framdi sjálfsvíg.

Mario Savarese, bæjarstjóri Ardea, sagði að árásarmaðurinn og fórnarlömbin hefðu öll búið í sömu húsaþyrpingu í bænum, en talið er að maðurinn hafi átt við geðtruflanir að stríða. Samkvæmt sjónarvottum hóf maðurinn skothríð við nálægan lystigarð, og hæfði drengina tvo og manninn, sem var á hjóli þar hjá. Ríkir mikil sorg á Ítalíu vegna málsins.