Boðaþing Fyrsta skóflustungan að nýjum þjónustukjarna við aldraða í Kópavogi var tekin árið 2006 og tók Jóhanna Arnórsdóttir hana.
Boðaþing Fyrsta skóflustungan að nýjum þjónustukjarna við aldraða í Kópavogi var tekin árið 2006 og tók Jóhanna Arnórsdóttir hana. — Morgunblaðið/RAX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Hólmfríður M. Ragnhildard. hmr@mbl.is Ekki verður af hjúkrunardeild fyrir einstaklinga yngri en 67 ára í Boðaþingi, en sú hugmynd hefur verið í vinnslu í nokkur ár.

Sviðsljós

Hólmfríður M. Ragnhildard.

hmr@mbl.is

Ekki verður af hjúkrunardeild fyrir einstaklinga yngri en 67 ára í Boðaþingi, en sú hugmynd hefur verið í vinnslu í nokkur ár. Á minnisblaði sem Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogs, lagði fram 20. maí kemur fram að ákveðnar fyrirstöður komi í veg fyrir að hægt verði að ráðast í þetta verkefni.

Vill deild fyrir yngra fólk

Theódóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, hefur barist fyrir opnun deildarinnar í Boðaþingi og er því afar vonsvikin með þessa niðurstöðu.

„Við þyrftum að vera með hjúkrunarheimili fyrir alla aldurshópa,“ segir Theódóra en hún vill að hjúkrunarheimili bjóði upp á úrræði fyrir einstaklinga yngri en 67 ára sem þurfa á langtíma fjölþættri þjónustu að halda.

Theódóra bendir á að ekki sé viðunandi að ungir einstaklingar þurfi að dvelja til lengri tíma á hjúkrunarheimilum þar sem fólk stoppar að meðaltali í tvö ár enda skapi mikil endurnýjun einstaklinga ekki gott félagslegt umhverfi.

Í upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands kemur fram að á árinu 2018 hafi um það bil 139 einstaklingar yngri en 67 ára búið á hjúkrunarheimilum en af þeim voru einungis 20 sem dvöldu á sérhæfðum hjúkrunardeildum fyrir yngra fólk.

Leggur Theódóra áherslu á að ekki sé lagt til að þetta verði eina úrræðið fyrir einstaklinga sem þurfi á fjölþættri þjónustu að halda heldur sé frekar verið að fjölga þeim möguleikum sem þessu fólki bjóðast.

Öll af vilja gerð en mörg ljón í veginum

Í minnisblaðinu frá Aðalsteini Sigfússyni kemur fram að bæði Kópavogsbær og heilbrigðisráðuneytið séu öll af vilja gerð þegar komi að opnun hjúkrunardeildar fyrir einstaklinga yngri en 67 ára. Hins vegar séu ákveðin atriði sem komi í veg fyrir að hægt sé að koma þessu umfangsmikla verkefni í Boðaþingi á laggirnar. Segir meðal annars í minnisblaðinu að hér sé „um nýbreytni að ræða og mörg ljón í veginum vegna mikils flækjustigs laga og reglugerða, auk þess sem vinna þarf að samningagerð sveitarfélaga þannig að hlutverk þeirra í milli og greiðslur hvað þetta fyrirkomulag varðar fari ekki á milli mála.“

Hefur því verkefninu verið frestað um ókominn tíma í ljósi þess að óæskilegt þykir að opnun deildarinnar tefji fyrir uppbyggingu á hjúkrunarheimilinu í Boðaþingi.

Sambærilegar deildir í Reykjavík

Theódóra kveðst hissa á þeirri niðurstöðu að samningagerð, reglur og lagaflækjur komi í veg fyrir að hægt sé að fara af stað í verkefnið enda séu nú þegar til staðar tvær deildir á hjúkrunarheimilum í Reykjavík fyrir yngra fólk. Segist hún ekki meðvituð um hvaða lagaflækjur það eru sem um ræðir enda fylgdu því engar nánari útskýringar á minnisblaðinu.

Furðar hún sig einnig á að ekki sé búið að leysa úr þessum fyrirstöðum í ljósi þess hve verkefnið hefur verið lengi í vinnslu en skrifað var undir samninga um opnun hjúkrunardeildarinnar á síðasta kjörtímabili árið 2016.

„Það hefur verið mikill vandræðagangur í kringum þetta og eiginlega alveg óskiljanlegt hvað þetta hefur tafist og svo segja þeir núna að það sé ekki tími til,“ segir Theódóra.

Brýn þörf á fjölþættari þjónustu við eldri borgara

Bætir Theódóra við að mikil þörf sé á að endurhugsa hugmyndafræði hjúkrunarheimila, ekki bara með tilliti til unga fólksins. Vill hún að fjölþættari þjónusta við eldri borgara standi til boða, ekki sé nóg að bjóða eingöngu upp á heimaþjónustu eða hjúkrunarheimili, einhvers konar millistig þarf að vera til staðar. Bendir Theódóra á að til að þetta gangi upp þurfi mikið samstarf að vera til staðar milli ólíkra hlutaðeigenda. „Þetta gerist ekki nema í miklu samstarfi og samráði milli ríkis og sveitarfélaga.“

Ekki náðist í heilbrigðisráðuneytið við gerð þessarar fréttaskýringar.