Gleði Dascha Polanco faðmar Jasmine Cephas Jone og Marc Anthony faðmar Anthony Ramos á rauða dreglinum.
Gleði Dascha Polanco faðmar Jasmine Cephas Jone og Marc Anthony faðmar Anthony Ramos á rauða dreglinum. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dans- og söngvamyndin In The Heights í leikstjórn Jons M. Chu var frumsýnd á Tribeca-hátíðinni í New York í liðinni viku og sama dag tekin til sýningar hér á landi.
Dans- og söngvamyndin In The Heights í leikstjórn Jons M. Chu var frumsýnd á Tribeca-hátíðinni í New York í liðinni viku og sama dag tekin til sýningar hér á landi. Handrit myndarinnar skrifaði Quiara Alegría Hudes og byggir á samnefndnum söngleik þeirra Lin-Manuel Miranda, sem sjálfur leikur í myndinni. Aðrir leikarar eru Anthony Ramos, Melissa Barrera, Leslie Grace, Corey Hawkins, Olga Merediz og Jimmy Smits auk þess sem Marc Anthony bregður fyrir.