Blóðbankinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag, en brýn þörf er á því að fjölga blóðgjöfum á Íslandi að sögn Blóðgjafafélags Íslands.
Blóðbankinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag, en brýn þörf er á því að fjölga blóðgjöfum á Íslandi að sögn Blóðgjafafélags Íslands. — Morgunblaðið/Hari
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert, en dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð og blóðhluta sem síðan er gefið til sjúkra.

Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert, en dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð og blóðhluta sem síðan er gefið til sjúkra. Dagurinn var valinn til heiðurs Karl Landsteiner, sem fæddist á þessum degi, en hann innleiddi ABO-blóðflokkakerfið árið 1900.

Í fréttatilkynningu frá Blóðgjafafélagi Íslands, sem send var af þessu tilefni segir að mikil þörf sé á að fjölga blóðgjöfum, og að því sé tilvalið að nýta þennan hátíðisdag til að ganga í hóp „vaskrar sveitar blóðgjafa sem tryggja samfélaginu dýrmætt framboð af blóði og blóðhlutum. Án framlags okkar góðu blóðgjafa yrði erfitt, jafnvel ómögulegt, að framkvæma skurðaðgerðir og aðstoða einstaklinga í gegnum erfið veikindi,“ segir í tilkynningu félagsins.

Þar kemur einnig fram að sumartíminn reynist gjarnan erfiður fyrir starfsemi Blóðbankans þar sem ferðalög eru tíðari og blóðgjafar síður heima við en annars. Bankinn þarf 70 blóðgjafir á dag allan ársins hring til þess að anna eftirspurn, og því sé dýrmætt þegar blóðgjafar muni eftir að gefa blóð áður en þeir halda í sumarfrí.

Í tilkynningunni segir að ekki verði slegið upp garðveislu að Snorrabraut 60 vegna kórónuveirufaraldursins, en blóðgjafar, og fólk sem hefur áhuga á því að bætast í hóp blóðgjafa, eru hins vegar hvattir til þess að mæta í Blóðbankann að Snorrabraut 60 eða á 2. hæðina að Glerártorgi á Akureyri og láta gott af sér leiða. sgs@mbl.is