Í Herjólfsdal Einar Birgir Baldursson við Herjólfsbæinn en þar á að setja upp sýningu um Herjólf Bárðarson.
Í Herjólfsdal Einar Birgir Baldursson við Herjólfsbæinn en þar á að setja upp sýningu um Herjólf Bárðarson. — Morgunblaðið/Óskar Pétur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vestmannaeyjar Ómar Garðarsson „Það sem okkur langar að gera í Herjólfsbæ er að segja sögu Herjólfs Bárðarsonar sem fyrstur nam land í Vestmannaeyjum. Sögu sem er meira en 1.000 ára gömul.

Vestmannaeyjar

Ómar Garðarsson

„Það sem okkur langar að gera í Herjólfsbæ er að segja sögu Herjólfs Bárðarsonar sem fyrstur nam land í Vestmannaeyjum. Sögu sem er meira en 1.000 ára gömul. Eitthvað er um skriflegar heimildir en við höfum fengið aðstoð sagnfræðinga og ætlum að nýta stafræna tækni til að koma sögunni á framfæri. Hvernig var t.d. mánudagur í bæ Herjólfs og var fjör á laugardögum? Þetta er það sem okkur langar til, að bregða ljósi á daglegt líf fyrstu Eyjamannanna,“ segir Einar Birgir Baldursson, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Eyjatours með konu sinni, Írisi Sif Hermannsdóttur.

Þau gerðu í vetur samning við Vestmannaeyjabæ um rekstur Herjólsbæjar sem var reistur á árunum 2005 til 2006 að frumkvæði Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns. Bærinn er tilgátuhús og byggt sem langhús og gripahús.

Á síðasta ári gaf Herjólfsfélagið Vestmannaeyjabæ bæinn sem óskaði eftir tilboðum um nýtingu, rekstur og viðhald Herjólfsbæjar, með áherslu á fræðslu, kynningu á sögu og menningu þess tíma og ferðamennsku.

Allt verði sem raunverulegast

Alls bárust Vestmannaeyjabæ fjórar tillögur og varð tillaga Eyjatours fyrir valinu. Gert er ráð fyrir að bærinn verði opnaður í breyttri mynd á næsta ári. Og Einar Birgir ætlar að vanda til verka. „Við erum t.d. í samningaviðræðum við bandarískt fyrirtæki um gerð á dúkkum í fullri líkamsstærð, mjög raunverulegar sem verða klæddar í búninga eins og við höldum að fólk á þessum árum hafi klæðst. Herjólfur var húsbóndi á sínu heimili, átti konu og börn og svo voru þarna þrælar. Þegar fólk kemur inn sér það fólk að störfum og Herjólf brugga mjöð. Þá vill það vita meira og þar kemur stafræna tæknin að góðum notum. Hver persóna er með sinn kóða og í stað þess að fá upplesinn texta birtist stuttmynd í símanum hjá þér. Þetta má svo þróa áfram og það munum við gera. Í gripahúsinu verða svo uppstoppuð heimilisdýr,“ segir Einar Birgir.

Leynir á sér

Herjólfsbær leynir á sér og er mun stærri en ætla mætti þegar inn er komið. Í langhúsi er langeldur og lokrekkjur til beggja hliða. Einar Birgir segir eitthvað um fúa en að mestu leyti lítur timbrið vel út.

„Allar skemmdir verða lagfærðar. Bæjaryfirvöld treystu okkur fyrir bænum og við munum leita til fagfólks um allar lagfæringar og breytingar,“ segir hann.

Ekki ætla þau að vera með veislur í Herjólfsbæ en eru tilbúin til samstarfs við veitingamenn í Vestmannaeyjum. Þau hafa grafið upp að Herjólfur var mikill bruggari þannig að öl var drukkið í Herjólfsdal áður en fyrsta þjóðhátíðin var haldin 1874 þegar fagnað var 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar.

Herjólfur ekki góður gæi

Á Heimaslóð segir að Ormur auðgi hafi fyrstur byggt Eyjar en aðrar heimildir, sem eru taldar áreiðanlegri, herma að Herjólfur hafi fyrstur manna sest að í Vestmannaeyjum og reist býli sitt í Herjólfsdal um eða eftir árið 900. Herjólfur var ruddi og meinaði nágrönnum aðgang að vatnslind, Daltjörninni, en það leyfði Vilborg, dóttir hans, þegar kallinn sá ekki til. Sagan segir að Vilborg hafi elt hrafn sem hrifsaði af henni skó en í sömu andrá féll skriða á bæinn og var henni borgið. Vilborg setti bæ sinn austur á Heimaey og var nefndur Vilborgarstaðir.

8 hús og garðhleðslur fundust

Sumarið 1971 stýrði Margrét Hermanns Auðardóttir fornleifafræðingur uppgreftri í Herjólfsdal og lauk rannsóknum hennar 1980. Á um 1.300 fermetrum fundust átta hús og garðhleðslur frá fjórum til fimm byggingarskeiðum. Samkvæmt aldursgreiningu voru elstu húsbyggingarnar frá fyrri hluta 9. aldar eða mun eldri en áður var talið.

Þessar merku fornminjar voru urðaðar en það sést móta fyrir þeim. Nokkuð víst er að tugþúsundir þjóðhátíðargesta sem þar ganga um hafa enga hugmynd um söguna sem þar er að finna.