Reiður Hrúturinn Hreinn býr sig til atlögu.
Reiður Hrúturinn Hreinn býr sig til atlögu.
Tilraun varð gerð til innbrots í gestastofuna á Þingvöllum á dögunum. Málið þótti hið einkennilegasta, enda engu stolið. Sökudólgurinn gaf sig fljótt fram, en þó ekki til þess að játa á sig verknaðinn.

Tilraun varð gerð til innbrots í gestastofuna á Þingvöllum á dögunum. Málið þótti hið einkennilegasta, enda engu stolið. Sökudólgurinn gaf sig fljótt fram, en þó ekki til þess að játa á sig verknaðinn. Um var að ræða hrút og þegar þjóðgarðsverðir reyndu að reka hann á brott hugðist hann ráðast að vörðunum. Hrúturinn sneri þó við og sá verðugri andstæðing; spegilmynd sjálfs sín í rúðu gestastofunnar. Bandillur réðst hann því á sjálfan sig og mölbraut rúðuna. Talið er að tjón af völdum hrútsins sé um ein milljón króna. 2