Joris Rademaker
Joris Rademaker
Myndlistarmaðurinn Joris Rademaker opnar sýningu sína Sól og tími í Einkasafninu í Eyjafjarðarsveit í dag kl. 14.
Myndlistarmaðurinn Joris Rademaker opnar sýningu sína Sól og tími í Einkasafninu í Eyjafjarðarsveit í dag kl. 14. Joris sem hefur um árabil verið einn atkvæðamesti myndlistarmaður á Akureyri segir um list sína: „Síðustu ár hef ég notað lífræn efni í minni listsköpun eins og karftöflur, hvönn, fjaðrir, hnetur og birkigreinar, með því geri ég tengsl manna og náttúrunnar sýnileg. Í því fallega umhverfi sem Einkasafnið býður upp á með lækinn og birkiskóg, ætla ég að sýna tvö hringlótt verk – eitt úti og annað inni.“ Á opnuninni verður einnig gjörningur með þátttöku áhorfenda, í kringum lækinn. Safnið, sem stendur við syðri enda þjóðvegar 822, Kristnesvegar, er opið þessa og næstu helgi milli kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis.