Enginn asni. S-Allir
Norður | |
♠K54 | |
♥ÁKG84 | |
♦85 | |
♣652 |
Vestur | Austur |
♠G1097 | ♠83 |
♥5 | ♥732 |
♦7642 | ♦KG1093 |
♣10974 | ♣D83 |
Suður | |
♠ÁD62 | |
♥D1096 | |
♦ÁD | |
♣ÁKG |
Suður spilar 6G.
„Með gaffla í öllum litum ákvað ég breyta í gröndin. Ég er ekki alvitlaus þótt ég sé fyrst og fremst rúbertuspilari,“ skrifar James S. Kauder, sem aldrei þessu vant var staddur í tvímenningskeppni í stóru landsmóti. Hann opnaði á 2G og makker hans keyrði í 6♥ eftir yfirfærslu. En Kauder breytti í 6G út á keppnisformið og gafflana. Spaðagosinn út.
Spaðinn fellur ekki en svíningarnar í láglitunum ganga báðar og skila sagnhafa öllum slögunum, hvort heldur í hjörtum eða gröndum. En eðlið er sterkt og Kauder sá leið til að tryggja tólf slagi í vondri legu. Hann tók þrisvar hjarta og sendi vestur inn á fjórða spaðann.
Út af fyrir sig glæsilega spilað og hárrétt í rúbertubrids. En það er ekkert gefið aukalega fyrir öryggið í tvímenningi og Kauder fékk botn fyrir snilldina.