Völsungur og Þór frá Akureyri tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, í gær ásamt Haukum.

Völsungur og Þór frá Akureyri tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, í gær ásamt Haukum.

Jakob Snær Árnason og Álvaro Montejo skoruðu mörk Þórsara í 2:1-sigri gegn Grindavík á SaltPay-vellinum á Akureyri.

Þá skaut Jakob Héðinn Róbertsson Völsungi áfram í sextán liða úrslitn með sigurmarki í framlengingu gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði á Vodafone-vellinum á Húsavík en staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1.

Tómas Leó Ásgeirsson reyndist svo hetja Hauka þegar liðið vann 2:1-sigur gegn KF á Ólafsfjarðarvelli en hann skoraði sigurmark leiksins á 68. mínútu.

Haukar, Völsungur og Þór verða því öll í pottinum þegar dregið verður í sextán liða úrslitin sem fara fram dagana 11. og 12. ágúst.