Með nýrri skýjalausn hollensk-íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Five Degrees er bylting að hefjast í alþjóðlegum fjármálaheimi. Þetta fullyrðir Björn Hólmþórsson, forstjóri fyrirtækisins á Íslandi, í samtali við ViðskiptaMoggann. „Það sem er spennandi er að þessi bylting er drifin áfram af íslensku hugviti, því bakendakerfið er þróað hér á Íslandi,“ segir Björn. Nýja kerfinu verður hleypt formlega af stokkunum í Amsterdam í Hollandi á morgun. Hann segir að það sem sé einstakt við skýjalausnina, sem kallast °neo, er að með tilkomu hennar geti bankar nú keyrt allan sinn hugbúnað fyrir innlán og útlán í skýinu. „Þetta er heildstæð lausn fyrir innlán og útlán, þar með talið húsnæðislán. Við erum að taka margra ára reynslu við þróun hugbúnaðar fyrir fjármálakerfið og setja í skýjalausn, sem er einstök í sinni röð og þróuð einungis sem „native“ skýjalausn,“ bætir Björn við en Five Degrees er „uppselt“ í skýjalausnina út þetta ár eins og hann orðar það, þ.e. fyrirtækið mun geta tekið við fleiri nýjum viðskiptavinum á næsta ári. Allir íslenskir bankar og fjöldi lífeyrissjóða og verðbréfafyrirtækja hér á landi nota lausnir Five Degrees, allt í allt 26 fjármálafyrirtæki. Erlendir viðskiptavinir eru fimmtán talsins, þar á meðal hollenski bankinn ABN Amro og kanadíski stórbankinn Toronto Dominion Bank.