Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður verður á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í Tókýó sem hefjast í Japan 23. júlí. Keppir Ásgeir þá að óbreyttu á Ólympíuleikum í annað sinn á ferlinum.
Ísland fær kvótapláss í keppni með loftskammbyssu frá Alþjóðaskotíþróttasambandinu en staða Ásgeirs á heimslista hefur oft verið nokkuð góð á síðustu árum.
Fram að þessu var sundmaðurinn Anton Sveinn McKee eini íslenski íþróttamaðurinn með kepnisrétt á leikunum í Tókýó. Ekki hefur verið heiglum hent fyrir íþróttafólk að komast í alþjóðlega keppni og vinna sig inn á leikana vegna heimsfaraldursins.
Ásgeir náði mjög góðum árangri á Ólympíuleikunum í London árið 2012 þegar hann hafnaði í 14. sæti í keppni með loftskammbyssu af 10 metra færi og var ekki langt frá því að komast í úrslit í greininni.
Þá var Ásgeir ekki ýkja reyndur keppnismaður en hefur síðan þá keppt á mörgum stórmótum auk þess að keppa í mörg ár í efstu deild í Þýskalandi.
Í tilkynningu frá Íþrótta-og ólympíusambandinu kemur fram að Ásgeir muni keppa strax á fyrsta keppnisdegi leikanna hinn 24. júlí. Úrslitin í greininni eru á dagskrá samdægurs.
Enn sem komið er hefur íslensku íþróttafólki ekki tekist að ná lágmörkum fyrir keppni í frjálsum íþróttum á leikunum í Tókýó. Takist það ekki mun Ísland fá eitt sæti úthlutað í frjálsíþróttakeppninni. Íslendingar munu því alla vega eiga þrjá keppendur á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir tíðindi dagsins.
Takist Íslendingi að ná lágmarki í frjálsum, Guðni Valur Guðnason er til að mynda mjög nærri því í kringlukasti, þá myndi viðkomandi ná öðrum Íslendingi inn í frjálsíþróttakeppni leikanna. Ef við gefum okkur að Guðni nái lágmarki þá myndi íslensk frjálsíþróttakona einnig komast á leikana.