Sýningastjóri Sunna Ástþórsdóttir innan um nokkur verkanna á sýningunni í Nýlistasafninu sem nú stendur yfir.
Sýningastjóri Sunna Ástþórsdóttir innan um nokkur verkanna á sýningunni í Nýlistasafninu sem nú stendur yfir. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir

hmr@mbl.is

„Þráðurinn í sýningunni er skynjun og vísar hún í þennan fund sem maður á þegar gengið er inn í sýningarsal og maður mætir verki,“ segir Sunna Ástþórsdóttir, sýningastjóri á Nýlistasafninu, um samsýninguna Efnisgerð augnablik sem unnin er af myndlistarfólkinu Baldri Geir Bragasyni, Ingu Þórey Jóhannsdóttur, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Ívari Valgarðssyni.

Skynjun gesta og meðvitund er í forgrunni á sýningunni og meðal annars lögð áhersla á hvernig málverk geta virkjað rýmið, bæði rýmið í verkinu og líka rými áhorfenda. Leitast listafólkið eftir því að vekja upp hugmyndafræðilegar vangaveltur og fá gesti til að hugsa um hvernig þeir upplifa, í staðinn fyrir hvað.

„Fólk á að upplifa verkin á eigin forsendum. Þetta snýst líka um þann tíma sem maður eyðir með listaverkinu. Þegar maður færir sig um og skoðar verkin frá mismunandi sjónarhornum, mismunandi krókum og kimum, uppgötvar maður alltaf eitthvað nýtt. Við erum að reyna að leyfa því augnabliki að flæða fram,“ segir Sunna.

Innblástur frá málverkinu

Verkin snerta öll á þungri sögu málverksins, tilurð þess og arfleifð, en líka tilviljunum hversdagsins. Nota fjórmenningarnir bæði hefðbundna miðla við sköpun verkanna sem og fundin efni en nálganir þeirra eru ólíkar og hver og einn er með sína sérstöðu.

„Við höfum öll verið að velta málverkinu fyrir okkur, verið að teygja það og toga, og gera tilraunir með það sem efnivið. Verkin okkar eru því sjálfstæð en tengjast líka öll innbyrðis,“ segir Ingunn Fjóla, ein listamannanna úr hópnum.

Listaverkin dvelja í bilinu milli málverka og skúlptúra og eru þau ýmist í tvívídd eða þrívídd. Segir Ingunn verkin eiga það sameiginlegt að hægt sé að njóta þeirra einungis sem fallegra málverka en í þeim leynast einnig dýpri merkingar og jafnvel pólitískar skírskotanir. Segir hún bæði alvarleika og húmorískan léttleika einkenna sýninguna. Meðal þeirra listaverka sem fjórmenningarnir sýna er litrík innsetning sem knúin er áfram af mótorum, ljósmyndasería sem vekur upp spurningar um landamæraeftirlit, herðatrésskúlptúrar sem liggja á mörkum listhlutar og nytjahlutar, og ljósmyndasería af rýminu sem skapast milli listaverka.

Langur aðdragandi

Að sögn Ingunnar Fjólu, var það í gegnum samtal við fyrrum sýningarstjórann Aldísi Arnardóttur sem hlutirnir fóru fyrst að gerast en hugmyndin að sýningunni var búin að vera lengi í gerjun. Þegar fjórmenningarnir höfðu fyrst samband við Nýlistasafnið var sýningin því vel á veg komin og í kjölfarið bauð stjórn safnsins hópnum að fylgja hugmyndinni eftir. Listamennirnir hafa ekki sýnt saman sem hópur áður þótt leiðir þeirra flestra hafi legið saman.

Fjöldi gesta kíkti á safnið opnunarhelgina og hlakkar Sunna til að taka á móti gestum yfir sumartímann en sýningin mun standa yfir til 8. ágúst og verður opið milli kl. 12 og 18, frá miðvikudegi fram á sunnudag.