Trae Young átti þvílíkan stórleik í liði Atlanta Hawks þegar Atlanta vann fyrsta leikinn gegn Milwaukee Bucks í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum aðfaranótt fimmtudagsins en liðin áttust við á heimavelli Milwaukee.

Young skoraði 48 stig sem eru sjaldséðar tölur þegar svo langt er komið inn í úrslitakeppnina. Hann gaf auk þess 11 stoðsendingar og tók sjö fráköst. Young tryggði Atlanta sigurinn á vítalínunni á lokasekúndunum. sport@mbl.is