Samið Hallgrímur Steinsson, Íris Róbertsdóttir og Daði Pálsson.
Samið Hallgrímur Steinsson, Íris Róbertsdóttir og Daði Pálsson. — Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hagstæður hiti sjávar við Vestmannaeyjar skapar góðar aðstæður til að ala lax í kerum á landi.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Hagstæður hiti sjávar við Vestmannaeyjar skapar góðar aðstæður til að ala lax í kerum á landi. Hópur fjárfesta hefur gert samkomulag við Vestmannaeyjabæ um að fá úthlutaðri lóð í Viðlagafjöru á svokölluðu Nýjahrauni fyrir landeldisstöð.

Hafið er umhverfismatsferli vegna verkefnisins á vegum félagsins Sjálfbært fiskeldi í Eyjum ehf. Lárus Ásgeirsson stjórnarmaður segir gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári, ef nauðsynleg leyfi fáist fyrir þann tíma, og að lax verði settur í stöðina á árinu 2023.

Stefnt er að því að framleiða 10 þúsund tonn á ári en að framkvæmdin verði áfangaskipt. Fyrst verði byggt upp til framleiðslu á fimm þúsund tonnum og annað eins verði í síðari áfanga.

Lóðin er í efnisnámu

Í Viðlagafjöru er efnisnáma og segir Lárus að jafna þurfi lóðina með efnisflutningum innan svæðis. Hafi framkvæmdir þar því lítil umhverfisáhrif. Vestmannaeyjar eru það sunnarlega að þar er hægt að ná í hlýjasta sjóinn við landið. Aðstæður henta því vel til eldis á laxi í kvíum á landi. Ekki þarf mikinn aðgang að köldu eða heitu vatni. Áformað er að fá seiði ofan af landi en Lárus segir ekki ákveðið hvort fyrirtækið framleiði þau sjálf eða kaupi af öðrum. Þá segir Lárus að Vestmannaeyjar liggi vel við flutningaleiðum afurða til annarra landa. Loks nefnir hann að í fjárfestahópnum séu menn sem þekki til eldis, vinnslu og sölu sjávarafurða.

Hluthafar eru að mestu fyrirtæki og einstaklingar í Vestmannaeyjum.

„Þetta á eftir að gera sig mjög vel og verður lyftistöng fyrir byggðarlagið,“ segir Lárus.

Samningur fyrirtækisins og Vestmannaeyjabæjar um verkefnið var undirritaður í gærmorgun. Þar kemur fram að bærinn hefur hafið vinnu við skipulag svæðisins. Áætlað er að henni verði lokið í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Á þeim grundvelli verði lóðinni úthlutað. „Ég bind miklar vonir við þetta verkefni. Það er afar jákvætt. Það er framtíðin að við ekki aðeins veiðum fisk heldur ræktum hann einnig. Landeldi virðist vera það sem koma skal,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.