Til flugs á ný Icelandair hefur lent í nokkrum dýfum síðasta áratug.
Til flugs á ný Icelandair hefur lent í nokkrum dýfum síðasta áratug. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, kveðst ganga sáttur frá borði enda sé framtíðin hjá flugfélaginu björt.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, kveðst ganga sáttur frá borði enda sé framtíðin hjá flugfélaginu björt.

Icelandair hefur náð samkomulagi við fjárfestingasjóðinn Bain Capital um kaup á 16,6% hlut í félaginu fyrir tæplega 8,1 milljarð króna. Áformað er að boða til hluthafafundar 23. júlí. Meðal skilyrða kaupanna er að sjóðurinn fái stjórnarmann í Icelandair Group.

„Að því gefnu að þetta gangi eftir og verði samþykkt fá þeir stjórnarmann. Og þá þarf einhver að víkja. Það var í mínum huga rétt að stíga til hliðar á þessum tímapunkti,“ segir Úlfar.

Með öflugu fólki í stjórn

„Ég hef verið í stjórn í bráðum ellefu ár en með mér í stjórn eru fjórir einstaklingar sem hafa verið þar töluvert skemur. Allt saman frábærir aðilar. Það var því í mínum huga nokkuð ljóst að þetta væri rétti tíminn til að hætta og því lagði ég til að þetta væri gert með þessum hætti.“

– Þú kemur inn í stjórn félagsins í september 2010. Hvaða verkefni biðu ykkar þá?

„Þá var verið að vinna í endurfjármögnum Icelandair eftir bankahrunið. Það var verið að skipta um stjórn og ég fór þá inn í stjórn.

Jafnframt var fjárhagslegri endurskipulagningu að ljúka. Síðan í framhaldi af því er mikill vöxtur sem byggði að hluta til á því að við fengum mikla athygli út á eldgosið í Eyjafjallajökli, samliða því sem flugumferð var að aukast í heiminum og Icelandair var staðsett hér á þessum frábæra stað. Þetta snerist ekki aðeins um að fólk vildi koma til Íslands heldur var Ísland mjög þægileg skiptistöð fyrir fólk sem er að fljúga á milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Stóra málið var að grípa tækifærin sem tókst mjög vel. Næsta verkefni var að endurnýja flugflotann.

Reksturinn gekk mjög vel nema hvað árið 2018 lendir félagið í mótbyr sem var meðal annars tilkominn vegna harðrar samkeppni frá flugfélögum á borð við Norwegian og WOW air. Síðan var félagið komið á skrið þegar Max-þoturnar voru kyrrsettar 2019. Félagið sigldi í gegnum það og var að komast á beinu brautina aftur þegar kórónuveirufaraldurinn skall á. Og aftur tókst okkur að sigla í gegnum storminn með frábærum stjórnendum og frábæru starfsfólki.“

Mikið umbrotaskeið

– Félagið hefur sem sagt glímt við afleiðingar efnahagshruns, mótbyr vegna harðrar samkeppni, kyrrsetningu Max-þotnanna og svo faraldurinn. Það hefur verið ókyrrð í lofti?

„Ókyrrð í lofti er kannski vægt til orða tekið. Það hefur gengið á ótrúlegum hlutum.“

– Hvar er Icelandair statt eftir þessa endurskipulagningu?

„Icelandair er statt á mjög góðum stað. Mönnum tókst að sigla í gegnum faraldurinn með hlutafjáraukningu í fyrrahaust. Síðan eru hlutirnir að komast á fleygiferð en það er auðvitað dálítið mál að fara úr engu í eitthvað, hvað þá í töluvert mikið eins og nú þegar viðsnúningurinn er töluvert hraður,“ segir Úlfar og víkur að fjárfestingu Bain Capital.

Mikil viðurkenning

„Áhugi Bain Capital á því að koma að Icelandair var ótrúleg viðurkenning á því hversu vel hefur tekist til með endurskipulagninguna og ég er sannfærður um að félagið sé á ótrúlega góðum stað miðað við allt sem á undan er gengið.

Við erum að fá inn gríðarlega stóran og öflugan sjóð sem kemur ekki aðeins með fjármuni heldur líka þekkingu, reynslu og tengingar.“

– Hversu langan tíma mun taka að vinda ofan af áhrifum faraldursins?

„Slíkt mat hlýtur að vera ágiskun. Því í raun veit það engin. Mín ágiskun er að Icelandair muni komast töluvert hraðar út úr þessu en margir aðrir. Við erum lítið flugfélag og getum hreyft okkur töluvert hraðar en margir aðrir.

Við sjáum hvernig það hafa orðið algjör umskipti á síðustu vikum. Í byrjun maí voru menn ekki bjartsýnir á þróunina á Íslandi í ár en um miðjan maí breyttist takturinn og ég trúi því að þetta gerist hraðar en menn hafa verið að gera ráð fyrir.“

– Þannig að árið 2022 verði hið ágætasta ár í rekstri Icelandair?

„Ég held að það sé alveg klárt með öllum fyrirvörum. Ég sá hvorki fyrir Max-málið né kórónuveirufaraldurinn.“

Leituðu til fjárfesta

– Hver var aðdragandi þess að Bain Capital kemur að félaginu?

„Við tókum þá ákvörðun í byrjun árs að breyta tveimur Boeing 767-þotum í fraktvélar því þar eru gríðarleg tækifæri. Þá var farið að leita að aðilum sem myndu annars vegar kaupa vélarnar og hins vegar fjármagna breytingarnar og við myndum leigja þær til baka. Bain Capital kemur að því og þá þurftu þeir að skoða mjög vel þann aðila sem verið er að semja við. Það var upp úr því sem þeir nálguðust okkur og veltu fyrir sér möguleikanum á því að geta orðið hluthafar í félaginu. Og það er náttúrulega gríðarleg viðurkenning fyrir Boga [Nils Bogason forstjóra] og allt starfsfólkið hjá Icelandair að svona aðili sjái tækifærin og hafi áhuga fyrir þessu.“

– Hvað tekur við hjá þér?

„Ég hef nóg að gera. Það verður einu verkefninu færra. Það eru engin stór plön hjá mér önnur en þau að eftir mánuð þá lýkur þessum kafla í lífi mínu sem spannar orðið nærri ellefu ár,“ segir Úlfar sem er forstjóri Toyota á Íslandi.