Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fleiri konur en karlar sátu í nefndum á vegum ráðuneyta í fyrra. Hlutfallið var 51% konur á móti 49% karla. Er þetta annað árið í röð sem fleiri konur en karlar sitja í nefndum ráðuneyta.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Fleiri konur en karlar sátu í nefndum á vegum ráðuneyta í fyrra. Hlutfallið var 51% konur á móti 49% karla. Er þetta annað árið í röð sem fleiri konur en karlar sitja í nefndum ráðuneyta. Þetta kemur fram í ítarlegri skýrslu Jafnréttisstofu.

Í skýrslunni er rakið að 1.901 kona og 1.836 karlar hafi setið í nefndum á vegum ráðuneyta. Þótt konur séu í meirihluta heilt yfir er mismunandi skipting milli ráðuneyta. Sex ráðuneyti af tíu voru með hærra hlutfall kvenna en karla árið 2020. Mesta ójafnvægið var í kynjaskiptingu hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Þar voru 43% nefndarmanna konur en 57% karlar. Í heilbrigðisráðuneytinu voru hins vegar 44% nefndarmanna karlar en 56% konur.

Þegar horft er til þeirra nefnda sem skipaðar voru á síðasta ári var ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnar aftur með áberandi mestan kynjahalla. Þar voru 60% nýrra nefndarmanna karlar en 40% konur. Hjá forsætis- og félagsmálaráðuneytum er kynjahlutfallið 57% konur og 43% karlar á liðnu ári. „Hér er meiri munur á hlutfalli kynja í nefndum skipuðum á árinu 2020 en í heild og má því segja að nýtt hafi verið tækifæri að rétta af kynjahalla hjá flestum ráðuneytum,“ segir í skýrslunni.

Jafnréttisstofa upplýsir að árið 2020 var skipað í 179 nefndir, ráð og stjórnir, sumar nýjar og aðrar endurnýjaðar. „Þegar kynjahlutfall allra nefnda var skoðað kom í ljós að 136 þeirra voru skipaðar í samræmi við 15. gr. laga eða 76% nefnda, ráða og stjórna á vegum ráðuneytanna. Ekkert ráðuneytanna náði að fylgja jöfnu kynjahlutfalli með allar nefndir,“ segir í skýrslunni.

Kynjaskipting í nefndum
» Alls sátu 1.901 kona og 1.836 karlar í nefndum á vegum ráðuneyta árið 2020.
» Sex ráðuneyti af tíu voru með hærra hlutfall kvenna en karla.
» Mesta ójafnvægið var í kynjaskiptingu hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.