Laxar fiskeldi getur nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið við laxeldi á nýjum staðsetningum í Reyðarfirði.

Laxar fiskeldi getur nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið við laxeldi á nýjum staðsetningum í Reyðarfirði. Matvælastofnun veitti í gær fyrirtækinu nýtt rekstrarleyfi til fiskeldis þar í stað leyfis sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti.

Leyfið er efnislega eins og hið eldra nema hvað gert er ráð fyrir að útsett seiði verði ekki léttari en 200 grömm, í samræmi við umhverfismat framkvæmdarinnar. Í fyrra rekstrarleyfi var heimilt að setja út mun minni seiði. Það var atriðið sem úrskurðarnefndin gerði athugasemdir við.

Komið var að útsetningu seiða hjá Löxum og sótti fyrirtækið um bráðabirgðaleyfi til atvinnuvegaráðuneytisins. Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis, segir að fyrirtækið þurfi ekki á því leyfi að halda og hafi umsóknin verið dregin til baka.

Kostaði vinnu og orku

Laxar höfðu fyrir leyfi til 6.000 tonna eldis í Reyðarfirði. Leyfið sem Matvælastofnun gaf út í október en úrskurðarnefndin felldi úr gildi hljóðaði upp á 10 þúsund tonn til viðbótar.

Jens Garðar segir að afturköllun leyfisins hafi valdið ákveðnu uppnámi og kostað vinnu og orku. „Við unnum hlutina hratt og vel og höfum skipulagt okkur í kringum þetta,“ segir hann og segir að afturköllun leyfisins hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi fyrirtækisins. „Nú erum við komin á lygnan sjó aftur og getum haldið áfram okkar vinnu,“ segir Jens Garðar. helgi@mbl.is