Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur gert samkomulag við Adana Demirspor í Tyrklandi. Birkir mun gera tveggja ára samning við félagið.
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur gert samkomulag við Adana Demirspor í Tyrklandi. Birkir mun gera tveggja ára samning við félagið.
Adana Demirspor vann B-deildina á síðustu leiktíð og leikur því í efstu deild Tyrklands á komandi tímabili. Tyrkneska útgáfa Goal.com greinir frá að Birkir hafi samþykkt samningstilboð félagsins og aðeins eigi eftir að skrifa undir.
Birkir er 33 ára og lék með Brescia í ítölsku B-deildinni á síðustu leiktíð. johanningi@mbl.is