Sveinn Eyjólfur Tryggvason fæddist 26. maí 1972. Hann lést 30. maí 2021.
Útförin fór fram 12. júní 2021.
Ég minnist Sveins með mikilli hlýju og virðingu og þakka honum samfylgdina í gegnum árin og hefði óskað þess að þau hefðu orðið fleiri. Ég kveð þig með orðum skáldkonu úr Flatey á Breiðafirði, Herdísar Andrésdóttur.
Og seinna þar sem
enginn telur ár,
og aldrei falla nokkur
harmatár,
mun herra tímans,
hjartans faðir vor,
úr hausti tímans gera
eilíft vor.
Jón Kr. Ólafsson söngvari,
Reynimel, Bíldudal.