— Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Útför Gunnars Birgissonar, fyrrverandi alþingismanns og bæjarstjóra, fór fram í Lindakirkju í Kópavogi í gær. Athöfninni var einnig streymt í beinni útsendingu í Samskipahöllinni, reiðhöll hestamannafélagsins Spretts.
Útför Gunnars Birgissonar, fyrrverandi alþingismanns og bæjarstjóra, fór fram í Lindakirkju í Kópavogi í gær. Athöfninni var einnig streymt í beinni útsendingu í Samskipahöllinni, reiðhöll hestamannafélagsins Spretts. Auk þess var hún í beinni útsendingu á netinu. Að lokinni útför var erfidrykkja í Samskipahöllinni. Séra Sigfinnur Þorleifsson stýrði athöfninni og Óskar Einarsson sá um hljómflutning. Þá söng Páll Rósinkranz ásamt bakröddum ýmis lög, til að mynda Whiter Shade of Pale eftir hljómsveitina Procol Harum auk fleiri laga eftir hljómsveitina Queen.