Kvennalið Selfoss í fótbolta hefur fengið góðan liðsauka fyrir seinni hluta keppnistímabilsins en Kristrún Rut Antonsdóttir er komin aftur til félagsins eftir að hafa verið í atvinnumennsku erlendis undanfarin ár.
Kvennalið Selfoss í fótbolta hefur fengið góðan liðsauka fyrir seinni hluta keppnistímabilsins en Kristrún Rut Antonsdóttir er komin aftur til félagsins eftir að hafa verið í atvinnumennsku erlendis undanfarin ár. Kristrún, sem er 26 ára miðjumaður, lék með Selfossi frá 2010 til 2018 en síðan með Chieti og Roma á Ítalíu, Avaldsnes í Noregi, BSF í Danmörku, Mallbacken í Svíþjóð og síðast með St. Pölten þar sem hún varð austurrískur meistari í vor og lék með liðinu í Meistaradeild Evrópu.