Í 2. sæti Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur.
Í 2. sæti Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Kórdrengir og Grindvíkingar gerðu 1:1 jafntefli í mikilvægum leik í toppbaráttu Lengjudeildar karla í knattspyrnu í gær, næstefstu deildar. Grindavík er í 2.
Kórdrengir og Grindvíkingar gerðu 1:1 jafntefli í mikilvægum leik í toppbaráttu Lengjudeildar karla í knattspyrnu í gær, næstefstu deildar. Grindavík er í 2. sæti deildarinnar með 16 stig, stigi fyrir ofan Kórdrengi, og úrslit leiksins breyta því ekki þeirri stöðu. Fram er með gott forskot á toppnum eftir að hafa unnið fyrstu sjö leikina. Sigurður Hallsson kom gestunum frá Grindavík yfir á 67. mínútu en Albert Ingason tryggði Kórdrengjum stig með jöfnunarmarki á fjórðu mínútu í uppbótartíma.