Í Listvali Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen í nýja sýningarýminu.
Í Listvali Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen í nýja sýningarýminu.
Listval, nýtt sýningarými, verður opnað að Hólmaslóð 6 í dag, laugardag, kl. 16. Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf reka rýmið en Listval hefur sl. tvö ár veitt heimilum og fyrirtækjum myndlistarráðgjöf.
Listval, nýtt sýningarými, verður opnað að Hólmaslóð 6 í dag, laugardag, kl. 16. Elísabet Alma Svendsen og Helga Björg Kjerúlf reka rýmið en Listval hefur sl. tvö ár veitt heimilum og fyrirtækjum myndlistarráðgjöf. Rýmið á Hólmaslóð verður aðsetur Listvals þar sem fólk getur komið og skoðað fjölbreytta myndlist og fengið persónulega ráðgjöf við val á verkum, segir í tilkynningu. Í tilefni opnunar verða til sýnis verk eftir yfir 30 samtímalistamenn og ný heimasíða Listvals opnuð.