Hæli Boðað er til mótmæla.
Hæli Boðað er til mótmæla.
Refugees in Iceland, Solaris - hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, No Borders og Samstaða er ekki glæpur, hafa boðað til mótmælafundar gegn því sem þau kalla „ómannúðlega meðferð á flóttafólki og kerfisbundnu ofbeldi...

Refugees in Iceland, Solaris - hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, No Borders og Samstaða er ekki glæpur, hafa boðað til mótmælafundar gegn því sem þau kalla „ómannúðlega meðferð á flóttafólki og kerfisbundnu ofbeldi Útlendinga-stofnunar“ á morgun, sunnudag klukkan 13 á Austurvelli.

„Við fordæmum ítrekaða ómannúðlega meðferð á fólki á flótta og kerfisbundið ofbeldi Útlendingastofnunar auk lögregluofbeldis í vikunni. Það hafa aldrei verið jafn margir á flótta í heiminum og nú og því er nauðsynlegt að stjórnvöld leggi niður Útlendingastofnun og breyti tafarlaust um stefnu í málefnum hælisleitenda,“ segir í tilkynningu mótmælenda.