Sund Áskorun að yfirvinna kulda, segir Erna Héðinsdóttir sem er þriðja frá hægri á þessari mynd sem tekin var í Nauthólsvík í vikunni. Þessa dagana, um hásumarið, er sjórinn við Reykjavík um það bil 14° heitur sem er þægilegt, svo flestir ættu að geta prófað sjósund, sem sagt er bæta, hressa og kæta.
Sund Áskorun að yfirvinna kulda, segir Erna Héðinsdóttir sem er þriðja frá hægri á þessari mynd sem tekin var í Nauthólsvík í vikunni. Þessa dagana, um hásumarið, er sjórinn við Reykjavík um það bil 14° heitur sem er þægilegt, svo flestir ættu að geta prófað sjósund, sem sagt er bæta, hressa og kæta. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ögrun! Sjósund er hraðferð út úr þægindaramma, segir Erna Héðinsdóttir. Verkir hverfa og vellíðunarhormón streyma fram. Villisund er vinsælt. Konur eru allt að 90% iðkenda í sportinu sem stundað er víða um land og er í sókn.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Sjósundið virkaði vel á mig,“ segir Erna Héðinsdóttir. „Ég hef lengi haft vefjagigt sem meðal annars hefur fylgt þrálátur höfuðverkur. Að fara í kaldan sjóinn gaf mér allt annað líf og betri heilsu. Almennt styrkir þetta ónæmiskerfið og kemur endorfíni – vellíðunarhormóninu – í gang. Þegar verkir og þreyta hrjá mig er sjórinn allra meina bót. Endurræsing á líkama og sál.“

Líðandi sumar er hið þriðja sem Erna stendur fyrir sjósundsnámskeiðum sem njóta sífellt meiri vinsælda. Sjórinn heillar og margir leita leiða til að auka vellíðan sína í sjónum.

Fataskipti í fjörunni

„Sjósund er fyrir marga hraðferð út úr þægindarammanum. Vinsældir þessarar íþróttar eða sports aukast sífellt, meira að segja svo að oft mynduðust biðraðir eftir að komast í aðstöðuna við Ylströndina í Nauthólsvík á meðan fjöldatakmarkanir giltu. Ég fór því að horfa til þess að fara með mitt fólk á námskeiðunum á nýja staði. Slíkt köllum við villisund. Við förum í sjó til dæmis við Skarfaklett nærri Sundahöfn, Geldinganes í Grafarvogi, hjá golfvellinum á Seltjarnarnesi og við Sjáland í Garðabæ. Þarna hefur fólk fataskipti í fjörunni og fer svo út í sjó,“ segir Erna og heldur áfram:

„Yfirleitt er nokkuð lygnt í Fossvoginum og auðvelt að synda þar. Við Skarfaklett gætir hins vegar úthafsöldunnar og því eru þessir staðir ólíkir. Við Sjálandið er nauðsynlegt að synda á flóði því þar eru grynningar á fjöru sem sjósundsfólk þarf að taka með í reikninginn. Yfir þessi atriði öll, áhrif kælingar í köldum sjónum á líkmann og fleira slíkt, er farið í bóklega hlutanum á námskeiðunum hjá mér, það er áður en farið er í sjóinn. Við förum líka vel yfir öryggisatriði sem skipta máli, svo sem að synda aldrei einn, vera vel sýnilegur og passa vel upp á hvert annað. Í fyrstu tímunum er stóra áskorunin helst sú að hjálpa fólki að yfirvinna kuldann. Annars er sjórinn hér við borgina þessa dagana um 14° heitur svo sundið er þægilegt.“

Konur þola kulda vel

Konur eru í meirihluta þeirra sem stunda sjósund; eða 80-90% þátttakenda. „Konur hafa alla jafna þykkara fitulag á líkamanum en karlar og eru því betur gerðar en karlarnir að þessu leyti til að þola kulda. Annars er sjósundið fyrir alla og afar skemmtilegt,“ segir Erna sem kynnir sig og sitt á Facebook undir titlinum Sjósundsnámskeið Ernu .

„Sjósund kemur víða og æ sterkar inn. Við erum með öflugt sjósundsfélag hér í Reykjavík sem stendur fyrir viðburðum, svo sem Fossvogssundum og sundi út í Viðey. Úti á landi er svo verið að mynda hópa fólks sem stundar sjóinn, svo sem í Stykkishólmi, á Þingeyri og Þórshöfn á Langanesi. Þá eru frá náttúrunnar hendi fínar aðstæður til sjósunds við Þorlákshöfn þar sem ég var með kynningu og námskeið fyrir nokkrum dögum. Vonandi rúllar þessi bolti áfram; sjósund er skemmtilegt og hefur gefið mér margt,“ segir Erna Héðinsdóttir að síðustu.