Spennufall Hleðslustöðvar ON standa ónothæfar í borginni.
Spennufall Hleðslustöðvar ON standa ónothæfar í borginni. — Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is ON og Reykjavíkurborg bíða enn eftir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frestun réttaráhrifa úrskurðar um ógildingu samnings milli aðilanna tveggja. Kærunefndinni barst einnig ósk um endurupptöku málsins þar sem athugasemdir voru gerðar við forsendur ákvörðunarinnar.

Baksvið

Baldur S. Blöndal

baldurb@mbl.is

ON og Reykjavíkurborg bíða enn eftir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um frestun réttaráhrifa úrskurðar um ógildingu samnings milli aðilanna tveggja. Kærunefndinni barst einnig ósk um endurupptöku málsins þar sem athugasemdir voru gerðar við forsendur ákvörðunarinnar.

Málið varðar útboð sem Reykjavíkurborg hélt um rekstur hleðslustöðva á nánar tilgreindum bílastæðum víðsvegar um borgina. Orka náttúrunnar bauð best og síðan þá hefur félagið sett upp fjölda stöðva á grundvelli samnings þar um. Kærunefnd útboðsmála barst kvörtun um útboðið þar sem það var sagt hafa brotið í bága við EES-rétt og fleiri reglur. Kærunefndin féllst á það og hefur ógilt samninginn og gert borginni að greiða sektir. ON hefur síðan þá rofið strauminn til stöðvanna.

ON og borgin bíða átekta

Breki Logason, forstöðumaður samskiptasviðs OR, segir Orku náttúrunnar bíða átekta en vonast til þess að úrskurðurinn verði endurskoðaður og þjónusta hleðslustöðvanna hefjist að nýju. Það sé hagur allra að hleðslustöðvarnar komist í gagnið.

Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, er á sama máli: „Við viljum koma þessu upp sem allra, allra fyrst og fá þetta í notkun. Skyldur sveitarfélagsins eru helst að þjónusta þá sem ekki eiga lóð til að hlaða. Þar þurfum við náttúrlega að byggja upp aðstöðu þannig að þessir aðilar geti farið í orkuskipti, það er það sem við erum að fókusa á með þessum tuttugu stöðvum á ári.“

Útboðin tímafrek

Fari svo að kærunefndin fresti ekki réttaráhrifum úrskurðarins né taki málið upp að nýju yrði Reykjavíkurborg að ráðast í nýtt útboð. Guðmundur segir það ekki vænlegan kost: „Það tekur náttúrlega svolítinn tíma að bjóða út og semja við nýja aðila. Ef það kemur nýr aðili að verkinu þarf náttúrlega að rífa allt í burtu og setja upp nýtt, í síðasta útboði veittum við fjóra mánuði til þess að setja upp búnað.“

ON myndi aftur senda tilboð

Breki segir að ON myndi taka þátt í því útboði. Það liggur ljóst fyrir að ef tilboð ON yrði ekki fyrir valinu þyrfti að fjarlægja þann búnað sem ON hefur þegar sett upp. Reykjavíkurborg hafði áætlað að kostnaður við uppsetningu stöðvanna næmi rúmum 42 milljónum króna án virðisaukaskatts. Breki segir ON gera ráð fyrir að verða skaðlaus af samningi sínum við Reykjavíkurborg, með tilliti til undirbúnings og framkvæmda sem hafa farið fram. Hann vildi þó ekki staðfesta neinar tölur um útlagðan kostnað við framkvæmdirnar hingað til.

Sé miðað við nýtt útboð nú í júlí gæti verið langt í að stöðvarnar komist í notkun: „Ef við myndum fara í útboð núna í júlí þá erum við alltaf að horfa á að við gætum verið komin með nýjar stöðvar í lok janúar. Nema þá ef ON býður aftur í verkið og er lægst í sérleyfisútboði á EES-markaðnum. Þá gætu stöðvarnar staðið og allt gengi hraðar. Við förum auðvitað í útboð með það fyrir augum að allir séu jafnir þar,“ segir Guðmundur en úrskurðarins má vænta á næstu dögum.

Hleðslustöðvar
» Ákvörðun kærunefndar útboðsmála mun skipta sköpum um framtíð hleðslustöðva borgarinnar.
» Fari svo að úrskurðurinn standi óbreyttur gætu stöðvarnar staðið straumlausar fram á næsta ár.
» Þá gæti þurft að fjarlægja þær stöðvar sem ON hefur þegar smíðað og nýjar byggðar í stað þeirra.