„Ég ákvað að taka lag sem ég einhvern veginn skil ekki að einhver hafi ekki fattað upp á að gera ábreiðu af áður.
„Ég ákvað að taka lag sem ég einhvern veginn skil ekki að einhver hafi ekki fattað upp á að gera ábreiðu af áður. Ég fór eitthvað að pæla í því hvort að einhver hefði gert þetta áður en það virðist sem enginn hafi gert það, þannig að ég ákvað að taka upp ábreiðu af Sumarið er tíminn,“ segir Íris Hólm í viðtali við Síðdegisþáttinn. Rödd Írisar ættu hlustendur K100 að þekkja vel enda syngur hún inn öll stefin á útvarpsstöðinni. Íris segir lagið Sumarið er tíminn með Bubba og GCD vera svo epískt að hún hafi ekki vitað hvort hún væri að gera mistök með því að taka ábreiðu af því, en segist þó sátt við útkomuna. Viðtalið við Írisi má nálgast í heild sinni á K100.is.