[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mitt sjónarhorn Philipp Lahm @philipplahm Sem gestgjafi í úrslitakeppni Evrópumótsins 2024 í Þýskalandi hef ég að sjálfsögðu áhyggjur af því hvort heimaliðið spili vel og hvernig það standi sig.

Mitt sjónarhorn

Philipp Lahm

@philipplahm

Sem gestgjafi í úrslitakeppni Evrópumótsins 2024 í Þýskalandi hef ég að sjálfsögðu áhyggjur af því hvort heimaliðið spili vel og hvernig það standi sig. Það er mikilvægt fyrir andrúmsloft og gæði keppninnar að heimaliðið spili djarft og veki vonir. Að það sé með karaktera í sínum röðum sem stuðningsmenn tengja við. Að það viti og skynji að það sé á heimavelli.

Almenningur metur leikmennina eftir því hvernig þeir standa undir ábyrgðinni og hvernig liðið vex eftir því sem á keppnina líður. Ef það nær í leiðinni að þróa stíl sinnar eigin þjóðar inni á vellinum, sem oftast gerist af sjálfu sér, verður mikilvægi landsliðanna, Evrópumótanna og heimsmeistaramótanna áþreifanlegt. Saga fótboltans á skýr dæmi um þetta: England 1996, Frakkland 1998 eða Þýskaland 2006.

Í þessari Evrópukeppni alls staðar hafa verið nokkrir gestgjafar og tveir þeirra mætast í úrslitaleiknum. Enska liðið naut ákafs stuðnings landa sinna í fimm leikjum á Wembley. Liðið er skipað gríðarlega miklum íþróttamönnum með mikinn skallastyrk, rétt eins og við þekkjum fótboltann í ensku úrvalsdeildinni og úr sögu enska landsliðsins.

Þjálfarinn Gareth Southgate hefur gefið liði sínu tvennt. Hann skrifaði opið bréf til þjóðarinnar þar sem hann fjallaði um kynþáttahatur og gerði lýðum ljóst að hann liti á starf sitt sem landsliðsþjálfari sem mikilvægt fyrir þjóðfélagið. Og liðið trúir á leikskipulag hans sem hljóðar þannig: Enginn mun skora auðveldlega hjá okkur. England fékk bara á sig mark í undanúrslitaleiknum gegn Danmörku.

Í sóknarleiknum leggur Southgate traust sitt á marga hæfileikaríka leikmenn með Raheem Sterling fremstan í flokki. Það er líka áhugavert að hann er með leikmenn sem ekki spila með „stóru sex“ liðunum, heldur með Leeds, Aston Villa, West Ham og Everton. Þetta styrkir líka ímynd enska liðsins.

Leika eins og félagslið

Mótherji Englands í úrslitaleiknum hefur verið á sigurbraut í þessari keppni. Frá því flautað var til fyrsta leiksins í Róm hafa Ítalir litið út sem öflug liðsheild með beinskeytt plan. Liðið samtvinnar gömlu ítölsku varnardyggðirnar, sem það þurfti sérstaklega á að halda í undanúrslitaleiknum gegn Spánverjum, við alþjóðlegan stíl.

Ítalir byggja ekki bara á varnarleiknum. Þeir hafa líka haldið boltanum talsvert á vallarhelmingi mótherjanna. Þannig hefur liðið sýnt meira en vanalega er á boðstólum í A-deildinni. Miðjumennirnir Marco Verratti, Nicolo Barella og Jorginho eru hreyfanlegir og nota fáar snertingar á boltann, sem þýðir að það er gott flæði í leik liðsins.

Leikskipulag Ítala er það besta í keppninni. Liðið virkar nánast eins og félagslið. Þetta er mikið afrek hjá Roberto Mancini og hans mönnum. Samstaðan er greinileg í viðtölum við þjálfarann eftir leikina. Ítalir eru sannfærandi. Gamla fótboltaveldið er komið aftur.

Flottur fótbolti Dana

Danir voru líka sannfærandi sem gestgjafar. Reglur vegna kórónuveirunnar voru túlkaðar frjálslega á Parken í Kaupmannahöfn. En hver getur láð Dönum að gleðjast yfir frammistöðu sinna manna eftir óhappið með Christian Eriksen. Þegar hann var endurlífgaður á vellinum tengdu allir við mikilvægi þess og hvernig öllum létti þegar honum var borgið. Þrátt fyrir tvo tapleiki óx liðið og samstaða fólksins með því var mikil.

Í útsláttarleikjunum sýndu Danir flottan fótbolta. Stjörnur liðsins, Martin Braithwaite (Barcelona) og Pierre Emile Höjbjerg (Tottenham), sýndu með kraftmiklum hlaupum og tæklingum hvernig þeir tengdu við samstöðu þjóðarinnar. Þeir léku sem sannir Danir og þjóðin fagnaði sínum mönnum.

Skýrar áherslur Spánverja

Og í Sevilla vissu allir Spánverjar hvaða lið var að spila. Þetta var þeirra lið. Spænskur fótbolti byggist á skýrum áherslum, allt frá U15 ára til meistaraflokks spila allir fótbolta sem byggist á tækni og spili. Luis Enrique og hans menn þurftu talsverðan tíma til að hita upp að þessu sinni en sýndu sitt rétta andlit í lok riðlakeppninnar með 5:0 sigri á Slóvökum. Þeir töpuðu síðan mjög naumlega í undanúrslitunum. En það virðist deginum ljósara að Spánverjar muni fylgja þessu eftir og vera í fremstu röð á HM 2022 í Katar og EM 2024 í Þýskalandi.

Aukin vantrú almennings

Mitt heimalið, Þýskaland, átti líka möguleika á að hagnast á þremur heimaleikjum í München, en náði bara að sigra Portúgal 4:2. Gegn Englandi í 16 liða úrslitunum mætti liðið ekki til leiks með nægilegan kraft eða ákveðni. Ekki var það vegna skorts á gæðum leikmanna. En síðustu þrjú árin hefur slæm frammistaða á HM og í þessari Evrópukeppni leitt af sér aukna vantrú almennings, bæði á frammistöðu liðsins og skipulag þýska knattspyrnusambandsins.

Fordæmi Southgate og Mancini

Gareth Southgate og Roberto Mancini hafa gefið gott fordæmi. Undanfarin ár hafa þeir þróað leikstíl með sínum liðum sem byggist á hefðum landsins og á leikmönnunum. Southgate hefur líka tekist að koma sínum tekjuháu stjörnuleikmönnum í skilning um að þeir séu ekki bara að spila fótbolta. Hann lætur þá líka taka ábyrgð fyrir hönd þjóðarinnar. Það gefur liðinu sterka ásýnd.

Eftir þrjú ár er röðin komin að Þýskalandi. Evrópukeppnin 2024 getur líka verið spennuþrungin fagnaðarhátíð þar sem heimaliðið hrífur þjóðina með sér. Rétt eins og mótið í ár sem hefur heppnast geysilega vel þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður. Í úrslitaleiknum mætast tvö lið sem bera skýr einkenni sinna þjóða. Og öll Evrópa bíður spennt eftir úrslitaleiknum. Keppnisfyrirkomulag EM er vel heppnað, það er augljóst.

Pistlar frá Philipp Lahm

Philipp Lahm var fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð heimsmeistari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er mótsstjóri Evrópumóts karla sem fram fer í Þýskalandi árið 2024. Pistlar hans, „Mitt sjónarhorn“, birtast reglulega í Morgunblaðinu og/eða mbl.is. Þeir eru skrifaðir í samvinnu við Oliver Fritsch, íþróttaritstjóra þýska netmiðilsins Zeit Online, og birtast í fjölmiðlum nokkurra Evrópulanda. Í sjötta pistli sínum í dag fjallar Lahm um úrslitaleik EM milli Englands og Ítalíu sem fram fer á Wembley annað kvöld klukkan 19.