Þau óvæntu tíðindi spurðust út að sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson hefði látið undan þrýstingi félaga sinna og fallist á að taka sæti á framboðslista flokksins í haust ef eftir yrði leitað. Síðustu skoðanakannanir benda til þess að flokkurinn nái þremur mönnum á þing.
Fornminjar í Stöðvarfirði benda til þess að Íslendingar hafi snemma verið á undan sinni samtíð, því þar hafa menn numið land töluvert fyrir landnám eða í kringum 800. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur telur þó réttara að tala um landnýtingu, vísbendingar séu um að þar hafi menn aðeins haft sumarsetu.
Upplýst var að Reykjavíkurborg hefði keypt skemmu við Kleppsveg, sem áður hýsti kynlífshjálpartækjaverslunina Adam & Evu, og ætli að kosta milljarði króna til þess að breyta henni í leikskóla . Ódýrara væri að jafna hana við jörðu og byggja nýtt.
Mikill samdráttur er í þorskveiðum á Atlantshafi á sama tíma og samkeppnishæfni Kínverja hefur dalað, sem gæti orðið til þess að hækka verð á þeim gula.
Bann við einnota plastvöru tók gildi um helgina, en þar á meðal eru plasthnífapör, drykkjarrör og fleira, en eins verður óheimilt að afhenda einnota plastílát með matvöru nema tekið sé fyrir það aukagjald.
·Eldfjallafræðingar klóra sér í hausnum yfir því að ekki er gott samræmi milli sýnilegrar virkni gígsins í Geldingadölum og hraunflæðisins. Möguleg ástæða kann að vera breytingar efst í gosrásinni.
Erlendir fjölmiðlar fjölluðu lofsamlega um styttingu vinnuvikunnar á Íslandi, en þær fréttir byggðust á skýrslu áhugasamtaka um tilraunaverkefni ríkisins og Reykjavíkurborgar 2015-2019. Þar var hins vegar minna rætt um erfiðleika við innleiðinguna og aukinn kostnað.
Læknar segja smithættu af völdum kórónuveirunnar hafa minnkað með bólusetningu, en hún sé þó enn til staðar. Þyngri ferðamannastraumur til landsins geri ný smit einnig líklegri.
Bandaríska sendiráðið í Ósló hefur verið í lamasessi í heimsfaraldrinum, sem hefur komið í veg fyrir að norskir námsmenn komist vestur um haf. Sendiráðið á Íslandi hefur hins vegar ekki átt í slíkum vandræðum, svo norskum námsmönnum í nauðum hefur verið bent á að ferðast hingað til að fá rétta stimpla í vegabréfið.
Miklar framfarir eru fyrirhugaðar í endurvinnslu hjá Sorpu , sem felst í því að krefjast glærra plastpoka utan um ruslið, en láta þá sem koma með svarta poka borga 500 kr. aukagjald fyrir þann hégóma.
Framlög úr ríkissjóði til vinnumála og atvinnuleysis reyndust 5,3 milljörðum króna lægri árið 2020 en ráð var fyrir gert. Hins vegar fóru örorkubætur nokkuð fram úr áætlun.
Þjóðhátíðarnefnd ÍBV ákvað að falla frá því að fá Ingólf Þórarinsson veðurguð til þess að stýra brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar eftir að fjölmargar ásakanir um ósæmilegt athæfi á hendur honum voru birtar á félagsmiðlum.
Skrásetjara varð það á hér í liðinni viku, að greina frá því að enn hefði ekki bólað á lúsmýi í landinu. Prentsvertan var ekki þornuð þegar lúsmýið gerði hressilega vart við sig og ber hann þess merki.
·Það styttist í kosningar eins og best sást á því að samgönguráðherra og borgarstjóri kynntu enn ein áformin um lagningu Sundabrautar . Þau eiga þó ekki að ganga fram fyrr en báðir verða komnir úr embætti. Og ekki nema félagshagfræðileg greining liggi fyrir um brúarsmíðina, hvað sem það nú er.
Sigmar Guðmundsson , frambjóðandi Viðreisnar, telur að heilbrigðismálin verði stærsta kosningamálið í haust, en staðfesti að flokkur sinn hefði Evrópumálin enn á oddinum, þar á meðal bindingu íslensku krónunnar. Hann vildi þó ekki segja á hvaða gengi festa skyldi krónuna við evru, en sagði að það yrði klárt fyrir kosningar.
Isavia telur að aftur séu komnar forsendur fyrir stækkun flugstöðvarinnar í Keflavík, þar sem nú komi þangað fleiri en tíu þúsund farþegar á dag. Þegar eru nú 20 flugfélög, sem stunda áætlunarflug um völlinn.
Sinubrunar í Heiðmörk í vor hafa ekki haft jafnslæm áhrif og margir óttuðust, en þar er þegar farið að gróa yfir á stórum svæðum.
Íslenskur fáni, sem áritaður var af herra Sveini Björnssyni forseta og seldur á góðgerðaruppboði í Danmörku eftir lok síðari heimsstyrjaldar, var keyptur af Vinafélagi Þjóðminjasafnsins og verður afhentur safninu síðar í sumar.
·
Í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar ( OECD ) um íslenskt efnahagslíf kemur fram að þrátt fyrir kórónukreppuna hafi efnahagsúrræði stjórnvalda reynst vel og að nú væri óhætt að reikna með öflugum efnahagsviðsnúningi og bullandi hagvexti. Það á ekki við í flestum öðrum löndum OECD.
Kaupfélag Skagfirðinga kynnti 200 milljóna króna framlag sitt til ýmissa samfélagslegra verkefna í sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi á næstu tveimur árum. Kaupfélagið vakti einnig athygli fyrir örlæti til efnalítilla í kórónukreppuni.
Óvissa ríkir um tilraunastöðina á Keldum eftir að ríkið eftirlét Reykjavíkurborg Keldnalandið sem framlag til Borgarlínunnar.
Birna Einarsdóttir , bankastjóri Íslandsbanka, andæfði þeim, sem gagnrýnt hafa sölu á hlutum í bankanum, og sagði frumútboð og skráningu hafa heppnast afar vel. Verðlagningin hafi byggt á alþjóðlega viðurkenndum aðferðum.
Ruslpoki fannst við Kambana, sem í voru meðal annars beinaleifar . Við athugun reyndust það ekki hafa verið mannabein.
Líf er að færast í Miðbæ Reykjavíkur á ný, en salan í verslunum er þó enn um helmingi minni en var árið 2019. Kaupmenn eru þó ánægðir og bjartsýnir á framhaldið, en veitingamenn mala.
·
Háls-, nef- og eyrnalæknir var sviptur lækningaleyfi vegna ónauðsynlegra aðgerða, sem hann hafði framkvæmt og sent reikninga vegna til Sjúkratrygginga.
Forstjórar Ölgerðarinnar og Coca Cola á Íslandi láta vel af sínum hag, enda er sala á gos- og bjórmarkaði meiri en spáð hafði verið. Stefnir í met hjá Ölgerðinni og kókið selst víst hvergi betur í Evrópu.
Rætt er um sameiningu Skagabyggðar og Skagastrandar nyrðra, en samtals búa þar 570 sálir. Í liðnum mánuði höfnuðu íbúar þeirra auk Blönduóss og Húnavatnshrepps sameiningu.
Tveimur flugumferðarstjórum var sagt upp störfum hjá dótturfélagi Isavia, vegna gruns um að hafa nauðgað nemanda í flugumferðarstjórn eftir samkvæmi fyrir ári.
Samtök ferðaþjónustunar (SAF) efast um heimildir landeigenda til gjaldtöku án þess að neitt komi á móti og eru þar einkum að ræða um lendingargjöld vegna þyrlna við Geldingadali.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að bæði Íslendingar og Bretar vilji dýpka enn á samskiptum og viðskiptum landanna, að ekki verði látið staðar numið við þann fríverslunarsamning, sem gerður var þeirra í millum fyrir skömmu.
Tveir útlendingar, sem hér voru í leyfisleysi, voru ginntir á skrifstofu Útlendingastofnunar , þar sem þeir voru handteknir og sendir úr landi. Ásakanir komu fram um að þeir hefðu verið beittir harðræði við handtökuna, en ríkislögreglustjóri segir myndefni af atvikinu ekki styðja að valdbeitingin hafi verið óhófleg.
Sala lausasölulyfja hófst í Staðarskála í upphafi mánaðar og líður Hrútfirðingum almennt mun betur.