England Jökull Andrésson fer til nýliða í ensku C-deildinni.
England Jökull Andrésson fer til nýliða í ensku C-deildinni. — Morgunblaðið/Eggert
Jökull Andrésson, knattspyrnumarkvörður hjá enska B-deildarfélaginu Reading, er líklega á leið til C-deildarliðsins Morecambe. Reading tilkynnti í gær að Jökull væri farinn til æfinga hjá Morecambe og hefði verið gefið leyfi til að spila tvo...
Jökull Andrésson, knattspyrnumarkvörður hjá enska B-deildarfélaginu Reading, er líklega á leið til C-deildarliðsins Morecambe. Reading tilkynnti í gær að Jökull væri farinn til æfinga hjá Morecambe og hefði verið gefið leyfi til að spila tvo æfingaleiki. Jökull, sem er 19 ára gamall, lék tvo leiki sem lánsmaður með Morecambe í D-deildinni síðasta vetur. Hann var hins vegar stærstan hluta þess tímabils í láni hjá Exeter í sömu deild, lék 31 leik og vakti athygli fyrir frammistöðu sína.