Á króknum. N-AV
Norður | |
♠4 | |
♥KD93 | |
♦ÁD642 | |
♣754 |
Vestur | Austur |
♠G107 | ♠KD963 |
♥G2 | ♥10875 |
♦109875 | ♦K |
♣KD8 | ♣G102 |
Suður | |
♠Á852 | |
♥Á64 | |
♦G3 | |
♣Á963 |
Suður spilar 3G.
„Þú varst með Gaukinn á króknum,“ sagði Alli og fékk sér nettan sopa af Diet Coke. TAB hefur ekki sést lengi.
Precisiongengið var með æfingu á Realbridge – Alli, Gaukur, Láki og Haukur. Þorlákur Jónsson opnaði á 1♦, Sverrir Gaukur Ármannsson kom inn á 1♠ og Haukur Ingason stökk í 3G „í þeirri von að spaðaáttan væri einhvers virði“.
Aðalsteinn Jörgensen spilaði út spaðagosa, svo tíu og hundi. Þá loks drap Haukur og spilaði litlum tígli á ÁS! Nákvæmt, því tígulkóngur þarf helst að vera þriðji réttur og þá kostar ekkert að taka fyrst á ásinn.
Haukur tók á tígulgosann, fór inn í borð á hjarta, og spilaði litlum tígli. Alli sótti litinn til baka, Haukur drap og spilaði enn tígli! Gaukur var nú kominn á krókinn með þrjú hjörtu og hæsta spaða og hefði með réttu átt að þvingast í næsta slag. En þá kom í ljós að spaðaátta suðurs var farin að heiman.