Fjórir laumufarþegar voru um borð í súrálsskipinu sem kom til hafnar í Straumsvík 8. júlí. Þeir höfðu ekki hugmynd um hvert förinni var heitið, að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Þeir vildu bara komast af landi brott.

Laumufarþegarnir koma upprunalega frá Gíneu og tala einungis frönsku en lögreglan hefur átt samskipti við þá með aðstoð túlks. Fóru þeir um borð í skipið í Senegal en skipverjar urðu þeirra varir á fjórða degi siglingarinnar.

Skipið sigldi fyrst til Brasilíu en mönnunum var ekki hleypt úr skipinu og inn í landið þar. Þeir dvöldu því í einni káetu skipsins uns þeir komu að landi á Íslandi. Jóhann telur ljóst að mennirnir hafi ekki ætlað sér sérstaklega að koma hingað. Þeir verða sendir úr landi, en ekki er á hreinu hvert.